Óleyfileg efni í Funksjonell Mat Fibre bread og Chia bread þurrefnablöndum
Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit
HB heildverslun ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Funksjonell Mat Fibre bread og Chia bread þurrefnablöndur.
Ástæða innköllunar er að varnarefnið ethylene oxíð greindist í vörunni en það er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu. Neysla á matvælum sem innihalda ethylene oxíð getur til langs tíma verið heilsuspillandi.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Framleiðsluland: Noregur
- Vörumerki: Funksjonell Mat
- Vöruheiti: Fiberbrød/Fibre bread
- Geymsluþol: Best fyrir lok Dagsetning: Sep.21 og Apr.22
- Lotunúmer: 933364x, 933464x, 933564x og 131857x
- Strikamerki: 7090017540609 og 7090017540623
- Nettómagn: 250 g og 1 kg
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðandi: Funksjonell Mat AS
- Vörumerki: Funksjonell Mat
- Vöruheiti: Chia Bread
- Geymsluþol: Best fyrir lok Dagsetning: Okt.21 og Mar.22
- Lotunúmer: AL93546577 og AL527822
- Strikamerki: 709007541361
- Nettómagn: 250 g
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðandi: Funksjonell Mat AS
- Framleiðsluland: Noregur
HB heildverslun ehf., Skútuvogi 11a, 104 Reykjavík sem innkallar ofantaldar vörur
Varan er í dreifingu hjá Heimkaupum, Bónus, Hagkaupum, Krónunni, Fjarðarkaupum, Melabúðinni, Hlíðarkaupum, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreindar vörur með þeim lotunúmerum og best fyrir lok dagsetningum sem tilgreind eru hér að ofan eru beðnir um að neyta þeirra ekki og farga en einnig er hægt að skila þeim í versluninni þar sem þær voru keyptar.
Nánari upplýsingar um innköllunina veitir HB heildverslun ehf í síma 555 1234.