Ný stefna um skólahúsnæði í borginni og stóraukin framlög til viðhalds
Stjórnsýsla Skóli og frístund
Borgarráð samþykkti í dag að stórauka fjárframlög til viðhalds og viðgerða á skólahúsnæði í borginni og verður 25-30 milljörðum varið til málaflokksins á næstu 5-7 árum. Samhliða voru kynnt drög að metnaðarfullri nýrri stefnu í húsnæðismálum fyrir skóla- og frístundastarf í anda menntastefnunnar Látum draumana rætast og Græna plansins, framtíðarsýn um sjálfbæra borg.
Mikill kraftur verður á næstu árum settur í viðhald og viðgerðir á húsnæði fyrir skóla og frístundastarf í borginni. Húsnæði leikskóla, grunnskóla og frístundar í eigu Reykjavíkurborgar telur 136 eignir á alls rúmlega 265 þúsund fermetrum.
25-30 milljarða viðhaldsáták
Áætluð fjárþörf átaksins á næstu fimm til sjö árum verða 25-30 milljarðar króna á verðlagi í september 2021.
Stýrihópur á vegum borgarinnar mun forgangsraða verkefnum þannig að öryggi notenda sé númer eitt, heilnæmt umhverfi númer tvö, þar með talið innivist, raki, mygla og hljóðvist, bætt aðgengi komi þar næst, fyrirbyggjandi aðgerðir svo og hagkvæm nýting fjármuna. Við forgangsröðun skuli einnig tekið tillit til sjónarmiða stjórnenda, fulltrúa notenda og áhrifa á starfsemi á hverjum stað.
Þetta átak snýst um viðgerðir og viðhald en ekki nýbyggingar eða viðbyggingar sem eru fjármagnaðar með öðrum hætti.
Árleg endurskoðun á forgangsröðun, umfangi og fjárþörf
Hafist var handa við að vinna úttektir á öllum byggingunum á síðasta ári og verða úttektirnar notaðar sem grunnur við forgangsröðun verkefna.
Um var að ræða sjónskoðun og voru byggingarhlutar ekki opnaðir við úttektina, en þar sem ástæða þótti til þess að opna byggingahluta var það skráð sérstaklega. Alls voru 136 eignir teknar til ástandsúttekta innan- og utanhúss (ekki lóðir) ásamt því að framkvæmdar voru rakamælingar innanhúss, loftgæðaskoðun, hljóðvistarskoðun. Allar skráningar úr úttektunum voru skráðar í rafrænan gagnagrunn til frekari úrvinnslu.
Þau atriði sem tekin voru til skoðunar:
- Öryggismál
- Rakamál
- Ytra byrði, klæðning, þök og gluggar
- Loftræsing, uppfærsla/endurbætur
- Innivist, hljóðvist, ljósvist ofl.
- Aðgengismál
Ekki voru gerðar sérstaklega úttektir á eldvarnamálum, rafkerfum, lögnum og loftræsilögnum. Þær úttektir fara fram með reglubundnu eftirliti samkvæmt þjónustusamningum. Þá voru ræstingar og öryggismál yfirfarin með notendum.
Afurð úttektanna er tvíþætt. Annarsvegar rafrænn gagnagrunnur sem inniheldur vinnugögn til frekari úrvinnslu yfir þær skráningar sem gerðar voru í hverri fasteign. Sá grunnur er nú þegar nýttur vegna viðhaldsvinnu og áætlanagerðar. Hins vegar er um að ræða textaskýrslur fyrir hverja byggingu þar sem lagt er mat á heildarástand hverrar fasteignar. Skýrslurnar lýsa ástandi fasteignanna á skoðunardegi, að mati skoðunaraðila.
Þegar búið að bregðast við öllum athugasemdum sem lúta að öryggismálum
Skýrslur verða kynntar sérstaklega fyrir stjórnendum á hverjum stað fyrir sig.
Nú þegar hafa öll mál sem koma fram í ástandsskýrslunum og varða öryggismál verið tekin fyrir og löguð eða sett í farveg fyrir áframhaldandi vinnu. Skýrslurnar sem birtar eru í dag lýsa stöðunni við skoðun og hafa ekki verið uppfærðar miðað við núverandi stöðu bygginga.
Smærri viðhaldsverkefni s.s. málun, dúkalagnir o.fl. eru framkvæmd með reglubundnum hætti. Viðhald eldvarnarkerfa, pípulagna, rafkerfa og loftræsikerfa eru samkvæmt þjónustusamningum.
Ný stefna um skólahúsnæði í borginni
Samhliða átaki í viðhaldi á húsnæði skóla- og frístundastarfsins voru í borgarráði lögð fram til kynningar í borgarráði drög að nýrri stefnu um byggingar á skólahúsnæði í anda menntastefnu borgarinnar Látum draumana rætast.
Stefnan tekur jafnframt mið af Grænu plani Reykjavíkurborgar sem er framtíðarsýn um borgarsamfélag sem einkennist af heilnæmu umhverfi, jöfnum tækifærum og öflugu atvinnulífi sem gengur ekki á náttúruauðlindir.
Í henni eru sett fram viðmið fyrir nýbyggingar, viðbyggingar og breytingar á húsnæði fyrir leikskóla, frístundaheimili, grunnskóla, skólahljómsveitir og félagsmiðstöðvar. Í viðmiðunum er að finna nánari leiðsögn til hönnuða um kröfur sem settar eru fram um einstök rými, tengsl, stærð, efnisval, búnað og aðra slíka þætti.