Lovísa Guðrún Ólafsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Hólabrekkuskóla í Efra Breiðholti.
Lovísa Guðrún er með B.A. gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands, Dipl.Ed. í menntunarfræðum með áherslu á sérkennslu og M.Ed. gráðu í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri. Þá hefur hún diplóma í mannauðsstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.
Lovísa hefur langa og farsæla starfsreynslu sem kennari, deildarstjóri og aðstoðarskólastjóri í grunnskóla auk þess að hafa starfað sem kennsluráðgjafi um nokkurra ára skeið. Hún tekur við stjórnartaumum í Hólabrekkuskóla um áramótin og er henni óskað velfarnaðar í nýju starfi.