Líðan og lífsstíll barna

Velferð Skóli og frístund

""

Náum áttum hópurinn heldur Zoom fund um líðan og lífsstíl barna miðvikudaginn 10. mars n.k.  frá kl 8:30-10:00. Rætt verður um áhrif lífsstíls á heilsu og líðan barna. Fundurinn er í samstarfi við Embætti landlæknis.

Dagskrá er sem hér segir;

  • Þorgrímur Þráinsson rithöfundur spyr Eftir hverju erum við að bíða?
  • Erlingur S. Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræðum hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, fjallar um  Hreyfingu og svefnmynstur ungmenna.
  • Tryggvi Helgason, barnalæknir, spyr Hvert stefnir heilsa barna? Erum við bjargarlaus?

Tengill á fundinn verður sendur til þeirra sem skrá sig tímanlega á naumattum.is. Þeir sem ekki hafa notað Zoom áður geta kynnt sér kerfið á zoom.us.

Fundarstjóri að þessu sinni er Rafn M. Jónsson.  Öll velkomin að taka þátt í fundinum.

Auglýsing fundarins