Langaði að vita hvað var á bak við augun í dúkkunum mínum

""

„Ég er frá Transylvaníu héraði í Rúmeníu sem þekkt er fyrir hina dularfullu sögu um Drakúla greifa á fimmtándu öld,“ segir Dr. Roxana Elena Cziker sem er verkefnastýra rannsókna á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

Roxana stýrir ólíkum fjölþjóðlegum verkefnum fyrir hönd Reykjavíkurborgar, annars vegar rannsókn á popúlískum hreyfingum og hins vegar á uppbyggingum heilbrigðs umhverfis fyrir eldri borgara framtíðarinnar.

„Ég ólst upp á litlum bóndabæ við fjallsrætur Carpata fjallgarðsins en þar er mikil náttúrufegurð og vinsæll ferðamannastaður. Þegar ég var lítil var ég alltaf mjög áhugasöm um starfsemi heilans og strax á unga aldri langaði mig til að vita hvort að dúkkurnar mínar gætu séð. „Ég kroppaði augun úr dúkkunum mínum til að kanna hvað væri á bak við augun. Ég veit þetta hljómar illa og mamma mín var alveg miður sín og spurði „Af hverju ertu að gera þetta?“ Þá sagði ég „mig langar að vita hvað er á bak við augun!“ Ég ætlaði mér að finna út hvað það var í höfðinu sem stýrði öllu sem við gerum. Ég vildi verða augnlæknir og var búin að skrá mig í háskólann en ákvað svo að fara í sálfræði. Ég tók doktorspróf í taugavísindum frá sálfræðideild læknaháskólans í Cluj-Napoka í Rúmeníu, en lokaverkefni mitt fjallaði um áhrif taugaskaða í heila á sjón hjá börnum. Að námi loknu starfaði ég sem sérfræðingur í greiningu og þjálfun barna með sjónskerðingu og fatlanir. Ég hef kennt í skóla fyrir blind og sjónskert börn í borginni Cluj-Napoka í Rúmeníu en frá árinu 2012 tók ég við stöðu skólastjóra skólans. Ég er með 15 ára reynslu í verkefnum eins og Long Life Learning, Erasmus plus og Horizon 2020 program. Og hef starfað í Frakklandi og hér á Íslandi við þróun og framkvæmd þjónustu fyrir börn með heilatengda sjónskerðingu.“

En hvers vegna kom Roxana til Íslands? „Mér var boðið starf hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda og sjónskerta við að samþætta þjónustu við fólk með sjón- og heyrnarskerðingu. Ég ákvað að prufa eitthvað nýtt og tók boðinu og flutti hingað 2015. Vinna mín fólst aðallega í því að þróa og innleiða mat og enduræfingarþjónustu fyrir börn með sjónskerðingu og heilaskaða sem kallað er heilatengd sjónskerðing. Ég hef meira en 25 ára reynslu við að byggja upp kennsluaðferðir sem henta þörfum þessara barna og geri það með því að setja mig í þeirra spor og reyna að skilja hvernig heimurinn kemur þeim fyrir sjónir. Því næst set ég saman sérsniðið starfrænt sjónúrvinnslu mat og æfingaáætlun sem auðveldar og hentar betur til að skapa sjónræna upplifun fyrir þennan hóp barna. Þessi aðferðafræði sem ég hef byggt upp hefur skipt veigamiklu máli í kennslu barna sem ég hef unnið með á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum.

Eftir að ég fluttist hingað kynntist ég svo manninum mínum honum Sigurjóni og hef búið hér síðan. Ég er mjög opin manneskja og fjölskyldan mín í Rúmeníu er mér mikilvæg og veitir mér stöðugleika og jafnvægi. Ég og maðurinn minn höfum gaman af að búa til mat og borða saman. Þegar ég held matarboð hef ég gaman af að hugsa um hvert smáatriði allt frá því að leggja á borðið með blómum, fallegum hnífapörum og matarstelli, og vín og matur skapa fullkomna athöfn og búa til eftirminnilega og skemmtilega stund. Við erum líka dugleg í að finna okkur tíma til að gleðjast saman eins og að ferðast, njóta útiveru og halda afmæli á skemmtilegum stöðum.

Mér finnst gaman að kynnast nýju fólki og hef fjölmörg áhugamál t.d. að dansa tangó og salsa, fara á tónleika, hlusta á klassíska tónlist og blús, horfa á íslenskt mótorkross, kappakstur, mótorhjól og Formúlu 1, stunda innanhúss- og fatahönnun, fara í göngutúra í náttúrunni, sérstaklega fjallgöngur og ferðast til annarra landa til að kynnast fólki og ólíkri menningu.

Ég sótti um starf hjá Reykjavíkurborg eftir að hafa lesið mjög áhugaverða starfsauglýsingu og vissi að mín 15 ára reynsla við að innleiða og framkvæma rannsóknar- og nýsköpunarverkefni innan Evrópusambandsins myndi nýtast vel. Ég hef líka áhuga á að taka þátt í þróun samfélagsins, taka þátt í mótun nýrra rannsókna og þróun þjónustu og samvinnu við vísindamenn og fræðinga.“ Roxana stýrir tveimur rannsóknarverkefnum Horizon 2020 á Skrifstofu borgarstjóra borgarritara hjá Reykjavíkurborg:

  1. PaCE – Populism and Civic Engagement. PaCE er 3 ára rannsóknar- og nýsköpunarverkefni sem hófst í febrúar 2019. Markmið verkefnisins er að greina tegundir, vöxt og afleiðingar evrópskra popúliskra hreyfinga, bakgrunn þeirra, einkenni, samhengi og tengdar áskoranir við frjálslynt lýðræði í Evrópu.
  2. NET4-AGE FRIENDLY Network on Smart Healthy Age-friendy Environments er fjögurra ára COST Action verkefni Evrópsks samstarfsnets í vísinda- og tækniverkefnum sem hófst fyrsta nóvember 2020. Áhersla verkefnisins er að þróa alþjóðlegt og þverfaglegt tengslanet til að byggja upp og framkvæma snjallt, heilbrigt umhverfi fyrir núverandi og framtíðar kynslóðir, leita leiða til stuðnings einstaklingum, til sjálfstæðs lífs og til að stuðla að heilbrigðri öldrun í samfélaginu.

„Ég er mjög ánægð í starfi og mér finnst gaman að vinna í hópum með fólki bæði á Íslandi og erlendis. Það er gaman að læra nýja hluti og innleiða nýjar tæknilausnir til að skapa, hagnýtara og aðgengilegra umhverfi í samfélaginu. Það að vinna að rannsóknarverkefnum í fjölbreyttu teymi er mikil áskorun þar sem þarf að leitast við að finna rétta púslið sem passar inn í heildar myndina, tengja saman þekkingu og skapa þannig nýjar forsendur til að komast að niðurstöðu.“

#fólkiðokkaríborginni #Fólkiðokkar #Fólkiðíborginni #hittumstáworkplace