Landnámssýningin lokuð vegna forvörslu rústarinnar

Menning og listir

""

Dagana 1. til 4. september er Landnámssýningin Aðalstræti 16 lokuð því þar fer fram forvarsla og viðhald á hluta landnámsrústarinnar.

Forverðirnir Ingibjörg Áskelsdóttir frá Borgarsögusafni og Sigríður Þorgeirsdóttir frá Þjóðminjasafni Íslands sjá um forvörsluna. Upphaflega var rústin forvarin 2006.

Nokkuð er um að brot úr rústinni hafi losnað, bæði hefur það gerst með tímanum og einnig hafa gestir safnsins losað brot.  Í þeirri vinnu sem nú er unnin, er hluti rústarinnar hreinsaður, laus brot límd niður og í lokin „vökvaður“ með efni sem heitir TEOS, og var notað við forvörslu rústarinnar upphaflega. Við vökvunina verður uppgufun etanóls, sem hættulegt er til innöndunnar, og verður Landnámssýningin því lokuð gestum dagana 1. – 4. september.