Kveikt var á jólatrénu, sem er gjöf frá Reykvíkingum til Þórshafnarbúa, á Tinghúsvellinum í Færeyjum á laugardaginn var.
Þetta er í níunda sinn sem Reykvíkingar gefa Færeyingum tré að gjöf, en tréð var fellt í Heiðmörkinni á svæði Skógræktarfélags Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði. Um er að ræða sitkagrenitré sem var plantað um 1960 og sá Eimskip um flutning trésins til Þórshafnar.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi, afhenti Þórshafnarbúum tréð við hátíðlega athöfn á Tinghúsvöllinum á laugardaginn var og að því loknu þakkaði Heðin Mortensen, borgarstjóri, Reykvíkingum fyrir tréð.
Létt snjókoma var í Þórshöfn á laugardaginn og gerði það viðburðinn enn jólalegri en ella. Jólatréð er fallega skreytt og jólasveinar voru á ferli og buðu gestum og gangandi upp á konfekt og flutt voru jólalög.