Íbúar í hverfum borgarinnar hafa nú lokið við að velja þær hugmyndir sem fara á kjörseðilinn fyrir kosninguna í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt í haust.
Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnisstjóri, segir að val á hugmyndunum sem fóru á kjörseðlana í hverju hverfi hafi gengið vel. "Ferlið var gert opnara, gegnsærra og skilvirkara en áður og í samstarfi við íbúaráðin í hverfum borgarinnar. Haldnir voru fundir sem var streymt beint á Facebook og voru íbúar í hverfinu áhugasamir að taka þátt í uppstillingu kjörseðils og velja hvaða hugmyndir verði á kjörseðlinum í haust. Hugmyndirnar sem hafa komist áfram eru mjög fjölbreyttar, allt frá nýjum gönguleiðum, spennandi leiksvæðum og skemmtilegum sögu- og kynningarskiltum" segir Eiríkur.
Verkefnin sem verða á kjörseðli í kosningunum Hverfið mitt þann 29. september nk.:
Fyrirkomulag
Heildarfjármagn til ráðstöfunar eru 850 milljónir fyrir hverfin í kosningunni og er upphæðinni skipt niður eftir íbúafjölda. Ákveðið hefur verið að þau hverfi sem hafa yfir 80 milljónir til ráðstöfunar hafi 30 hugmyndir á kjörseðlinum, 25 hugmyndir verði á kjörseðlinum í öðrum hverfum.
Eiríkur Búi segir að nú sé allt til reiðu fyrir kosningarnar í haust. Kosningar i Hverfið mitt 2021 hefst þann 29. september næstkomandi og lýkur þann 13. október nk. "Allir Reykvíkingar sem verða 15 ára á þessu ári og eldri geta kosið í ksoningunum og við hvetjum íbúa til að kynna sér málið og taka þátt".
Nánari upplýsingar um uppstillingu kjörseðla
Ef óskað er frekari upplýsinga er velkomið að hafa samband með tölvupósti í netfangið hverfidmitt@reykjavik.is
*tækar hugmyndir eru þær hugmyndir sem eru framkvæmanlegar út frá reglum verkefnisins sem má finna hér: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021