Kallað eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna velferðarráðs

Velferð

""

Velferðarráð efnir til hvatningarverðlauna fyrir eftirtektaverða alúð, þróun eða nýbreytni í velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar. Hægt er að skila inn tilnefningum til loka dags 9. júní. 

Markmið hvatningarverðlauna velferðarráðs er að vekja athygli á og hampa því mannbætandi og gróskumikla starfi sem fer fram á vegum velferðarsviðs. Verðlaunin eiga að vera viðurkenning til verðlaunahafa og staðfesting þess að viðkomandi sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Hægt er að tilnefna einstakling, starfsstað, hóp eða verkefni sem vakið hefur athygli fyrir eftirtektaverða alúð, þróun eða nýbreytni í velferðarþjónustu árið 2020. Senda þarf inn tilnefningu fyrir lok dags 9. júní.

Smelltu hér til að setja inn tilnefningu. 

Hvatningarverðlaun velferðarráðs hafa verið veitt frá því árið 2012, að árinu í fyrra undanskildu vegna þeirra aðstæðna sem Covid-19 skapaði. Fyrir árið 2019 hlaut Mánaberg, vistheimili barna, verðlaunin í flokki hópa og eða starfsstaða. Þá hlutu einnig verðlaun TINNA í flokki verkefna og Alda Róbertsdóttir, verkefnastjóri stuðningsþjónustu, í flokki einstaklinga. Að lokum hlaut Þóroddur Þórarinsson forstöðumaður viðurkenningu fyrir farsælt starf á sviði velferðarmála.

Hér má sjá hvaða einstaklingar og verkefni hafa hlotið hvatningarverðlaunin á síðustu árum: 

Hvatningarverðlaun veitt árið 2018

Edda Ólafsdóttir félagsráðgjafi, í flokknum einstaklingar.

Stuðningsþjónustuteymi Miðgarðs, í flokknum hópar/starfsstaðir.

Fróðir foreldrar í flokknum verkefni.

Hrönn Egilsdóttir, ráðgjafi í Miðgarði og Jóna Kolbrún Halldórsdóttir, þjónustufulltrúi í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis fyrir farsælt starf á sviði velferðarmála.

Hvatningarverðlaun veitt árið 2017

Halldór K. Júlíusson, deildarstjóri, í flokknum einstaklingar.

Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða í flokknum hópar/starfsstaðir.

K3 verkefnið í flokknum verkefni.

Guðný Jónasdóttir, forstöðumaður í Grundarlandi 17, fyrir farsælt starf á sviði velferðarmála.

Hvatningarverðlaun veitt árið 2016

Hákon Sigursteinsson deildarstjóri sérfræðiþjónustu í Þjónustumiðstöð Breiðholts, í flokknum einstaklingar.

Búsetukjarninn fyrir geðfatlaða Lindargötu 64 undir forystu Kristjáns Sigurmundssonar í flokknum hópar/starfsstaðir.

Austurstrætisverkefnið í flokknum verkefni.

Guðmundur Sigmarsson, verkefnastjóri, og Auður Sigurðardóttir, félagsráðgjafi, fyrir farsælt starf á sviði velferðarmála.

Hvatningarverðlaun veitt árið 2015

Jónas Hallgríms Jónasson verkefnastjóri, í flokknum einstaklingar.

Hælisleitendateymi Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða í flokknum hópar/starfsstaðir.

Starfsmenn hælisleitendateymis: Inga Sveinsdóttir, Sólveig B Sveinbjörnsdóttir, Marin Þórsdóttir og Björk Hakansson í flokknum hópar/starfsstaðir.

Verkefnið Geðveikur fótbolti og fótboltaliðið FC Sækó í flokknum verkefni.

Hvatningarverðlaun veitt árið 2014

Droplaugarstaðir í flokknum hópar/starfsstaðir.

Arndís Þorsteinsdóttir, sálfræðingur, í flokknum einstaklingar.

Vettvangsgeðteymi Reykjavíkur í flokknum hópar/starfsstaðir.

Félagsauðsverkefnið „Lesum saman“ sem unnið er í umdæmi þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts í flokknum verkefni.

Sólveig Jónsdóttir, félagsliði í Heimaþjónustu Reykjavíkur, fyrir farsælt starf á sviði velferðarmála í 33 ár.

Hvatningarverðlaun veitt árið 2013

Hlíf Geirsdóttir, matsfulltrúi í flokknum einstaklingar.

Fjölskylduheimilið Ásvallagötu í flokknum starfsstaðir.

Korpúlfar, samtök eldri borgara í Grafarvogi í flokknum hópar/verkefni.

Virknihópur í Seljahlíð fyrir athyglisvert verkefni og þróunarstarf.

Hvatningarverðlaun veitt árið 2012

Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis í flokknum starfsstaðir.

Kristjana Gunnarsdóttir, deildarstjóri á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis í flokknum einstaklingar.

Starfshópur á Dalbraut 21–27 í flokknum hópar/verkefni.