Jólaljósin tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli

Jólaljósin komin á Oslóartréð á Austurvelli

Ljósin á Óslóartrénu á Austurvelli verða tendruð í beinni útsendingu í kvöldfréttum sjónvarps á RUV næsta sunnudag. Sunnudagurinn 28. nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu. Vegna samkomutakmarkana verður ekki um neinn viðburð að ræða.

Tendrun jólaljósanna á Óslóartrénu hefur í gegnum árin markað upphaf aðventunnar í borginni og minnir sem fyrr á áratuga vinasamband Reykjavíkur og Óslóarborgar.  Óslóarborg gefur auk þess bókagjöf til allra grunnskóla Reykjavíkur.

Óslóartréð í ár felldi borgarstjóri í Heiðmörk þann 20. nóvember síðastliðinn og var það sett upp á Austurvelli nú í vikunni. Það er fagurlega skreytt í ár með það fyrir augum að gleðja gesti og gangandi sem eiga leið um Austurvöll. Það eru hvorki meira né minna en 4600 perur sem lýsa upp jólatréð. Stjarnan sem er á toppi trésins er í þrívídd og sést vel úr öllum áttum.  Jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra prýðir tréð að venju og allur ágóði af sölu óróans rennur til Æfingastöðvarinnar, þar sem börn fá sjúkra- og iðjuþjálfun. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt verkefnið.

Alexandra Briem mun tendra ljósin á trénu með aðstoð norsk-íslensku telpunnar, Laufeyjar Beiteu Pàlsdóttur. Tónlistarfólkið Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Guðmundur Óskar Guðmundsson flytja nokkur jólalög.