Íþróttafólk Reykjavíkur 2021

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

Sandra Sigurðardóttir, knattspyrnukona í Knattspyrnufélaginu Val, er íþróttakona ársins í Reykjavík og íþróttamaður var valinn Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingamaður í Glímufélaginu Ármanni. Íþróttalið Reykjavíkur fyrir árið er meistaraflokkur karla í Knattspyrnu frá knattspyrnufélagi Víkings.

 

Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. 

Sandra Sigurðardóttir, knattspyrnukona

Sandra varð Íslandsmeistari með félagsliðinu sínu Val í sumar. Hún er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar kvenna með 314 leiki. Sandra er landsliðsmarkvörður og mun leika með kvennalandsliðinu í knattspyrnu á Heimsmeistaramótinu sem fer fram í Bretlandi sumarið 2022. Hún átti mjög gott tímabil í ár og stefnir á áframhaldandi afrek. Sandra er góð fyrirmynd og mikilvægur leikmaður í sínum liðum.

Við óskum Söndru Sigurðardóttur til hamingju með titilinn Íþróttakona Reykjavíkur 2021.

Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingarmaður

Júlían Jóhann kraftlyftingarmaður í Glímufélaginu Ármanni. Júlían varð heimsmeistari í réttstöðulyftu í þungavigtarflokki á HM í kraftlyftingum þegar hann lyfti 380 kg, hann vann með miklum yfirburðum. Júlían varð einnig Evrópumeistari í réttstöðulyftu, einnig vann hann til brons verðlauna í samanlögðu þegar hann lyfti 1.105 kg. Árangurinn er einn besti árangur Íslendings á alþjóðamóti. Júlían vann einnig til gullverðlauna á Reykjavík International Games og er nú kominn með boð á heimsleikana í Alabama á næsta ári í Alabama (World Games 2022).

Við óskum Júlían Jóhanni Karli Jóhannssyni til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2021.

Víkingur

Víkingur varð Íslandsmeistari og Bikarmeistari karla í knattspyrnu. Víkingur er fimmta liðið á Íslandi til að vinna tvennuna, Íslands- og bikarmeistaratitlana. Liðið varð Íslands og Bikarmeistarar karla í knattspyrnu á árinu.

Við óskum meistaraflokki karla hjá Víkingi til hamingju með titilinn íþróttalið Reykjavíkur 2021.

Nánar má lesa um tilnefningar og félög á heimasíðu Íþróttabandalags Reykjavíkur