Innsýn í ljósmyndabókina Nætur sem daga

Menning og listir Mannlíf

Þann 1. desember 2021 var opnuð útisýning við Pósthússtræti með úrvali mynda úr ljósmyndabókinni Nætur sem daga sem Ljósmyndasafn Reykjavíkur gaf út í tilefni af 40 ára afmæli safnsins. Á sýningunni eru 27 ljósmyndir eftir 19 myndhöfunda.

Nætur sem daga er sérlega vandað, 216 bls, afmælisrit með 222 myndum úr safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur, eftir um 70 myndhöfunda. Í bókinni er einnig skemmtileg inngangsgrein eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur ásamt ljóðum og örsögum eftir Óskar Árna Óskarsson.

Myndaúrvalið veitir innsýn í þann mikla sjónræna fjársjóð sem finna má á Ljósmyndasafni Reykjavíkur, en safnið telur alls á sjöundu milljón mynda af ýmsum toga. Hluta myndasafnsins má einnig finna á Myndavef Ljósmyndasafns Reykjavíkur (www.borgarsogusafn.is)

Myndirnar völdu Sigríður Kristín Birnudóttir, Gísli Helgason og Kristín Hauksdóttir úr afar fjölbreyttum safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur, en öll hafa þau áratuga reynslu af því að annast ljósmyndir í varðveislu safnsins. Ritstjóri var Sigrún Kristjánsdóttir.