Innkalla ostaslaufur vegna vanmerktra ofnæmis- og óþolsvalda

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Myllan, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum ostaslaufur.

Ástæða innköllunar:

Vegna mistaka var rangri vöru pakkað í ostaslaufupoka. Ranga varan inniheldur ofnæmisvaldana hnetur og soja.

Hver er hættan?

Neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hnetum og/eða soja eru varaðir við að neyta vörunnar. Varan er örugg þeim sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir hnetum og/eða soja.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Myllan

Vöruheiti: Ostaslaufur

Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetningar: 10.09.2021

Strikamerki: 5690568014967

Nettómagn: 4 stk

Geymsluskilyrði: Á ekki við

Framleiðandi: Myllan

Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Myllan, Blikastaðavegi 2, 112 Reykjavík.

Dreifing:

Verslanir um allt land.

Leiðbeiningar til neytenda:

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um skila henni í þá verslun sem hún var keypt eða til Myllunnar, Blikastaðavegi 2, 112 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um innköllun:

Nánari upplýsingar veitir gæðadeild Myllunnar í síma 510 2300 eða með tölvupósti á gaedaeftirlit@myllan.is.