Innkalla Kjúklingabaunir frá Sólgæti

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Heilsa ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum kjúklingabaunir, vörumerki Sólgæti.

 

Skordýr, bjöllur, hafa fundist í vörunni en það gerir matvælin óhæf til neyslu.

Upplýsingar um vörur sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Sólgæti
  • Vöruheiti: Kjúklingabaunir          
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 31.07.2021
  • Strikamerki: 5024425282945    
  • Nettómagn: 500 g
  • Framleiðandi: Pakkað í Bretlandi af The Health Store fyrir Heilsu ehf.
  • Upprunaland: Tyrkland
  • Það er Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík, sem innkallar vöruna.

Það er Heilsuhúsin, Fjarðarkaup, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Melabúðin, verslanir Samkaupa, þ.m.t. Nettó sem selja vöruna.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga.

Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 533 3232 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið heilsa@heilsa.is.