Ingunnarskóli og Seljaskóli áfram í Skrekk

Skóli og frístund

""

Ing­unn­ar­skóli og Selja­skóli komust áfram í úr­slit hæfi­leika­keppn­inn­ar Skrekks þegar fyrstu undanúr­slit fóru fram í gærkvöldi í Borg­ar­leik­hús­inu. Áfram verður keppt til úr­slita í kvöld og annað kvöld.

Sex grunnskólar í Reykjavík stigu á svið í Borgarleikhúsinu á fyrsta undanúrslitakvöldinu: Austurbæjarskóli, Réttarholtsskóli, Ingunnarskóli, Norðlingaskóli, Seljaskóli og Breiðholtsskóli

Ingunnarskóli komst áfram með atriðið Af hverju má ég ekki bara vera ég? og Seljaskóli með atriðið Sköpun jarðar. 

Átján grunnskólar taka þátt í Skrekk í ár en átta þeirra munu keppa til úrslita þann 15. mars. Undanúrslitakvöldin verða sýnd í vefútsendingu á UngRÚV en úrslitakvöldið verður í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Um 400 unglingar taka þátt í á frumsömdum atriðum sinna skóla og spreyta sig í leiklist, söng, dansi, hljóðfæraleik, búningahönnun, förðun ljósum, hljóði og annarri sviðsvinnu.

Dómnefnd í undanúrslitum skipa þau Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Sigurður Andrean Sigurgeirsson dansari, Rakel Björk Björnsdóttir leikkona,  Bryndís Gunnlaugsdóttir frá Ungmennaráði Samfés og Sif Gunnarsdóttir, formaður dómnefndar.