Hýrt Borgarbókasafn á Hinsegin dögum

Menning og listir

""

Borgarbókasafnið verður að venju með í gleðinni á Hinsegin dögum, með fjölbreyttri dagskrá og virkri þátttöku, því bókasafnið er opið rými allra og öll eru velkomin.

Hýr Höfðingi - Bókabíllinn Höfðingi hýsir hinsegin bækur                                                                             

3.-6. ágúst, frá 13.00 – 18.00

Bókabíllinn Höfðingi er virkur þáttakandi í Hinsegin dögum. Af því tilefni verður bíllinn fylltur af hinsegin bókum sem hægt verður að skoða eða fá lánaðar. Borgarbókasafnið leggur mikla áherslu á að bjóða upp á hinsegin bókakost og vill tryggja að slíkar bækur séu sýnilegar, aðgengilegar og allskonar, fyrir okkur öll, alltaf. Bókabíllinn verður staðsettur í Tjarnargötunni og tekur á móti gestum og gangandi alla dagana.

Samsuða - Stefnumót listamanna

4. ágúst, frá 17.30 – 18.30. Borgarbókasafnið Kringlunni

Í tilefni Hinsegin daga mun rithöfundurinn Guðjón Ragnar Jónasson velja nokkur verk úr Artótekinu, skrifa hugleiðingar um hvert og eitt og opna sýningu með þeim. SamSuða er yfirskrift sýningarraðar í Borgarbókasafninu Kringlunni. SamSuða er stefnumót skapandi einstaklinga þar sem skáld velja verk úr Artóteki Borgarbókasafns og skrifa um þau stuttan texta. Verkin geta verið eftir einn og sama listamanninn eða blanda af verkum eftir ýmsa. Úr þessu verður hálfgerð SamSuða sem sett er upp á sýningu.

Kvöldganga | Hin hliðin á Reykjavík

4. ágúst 2021, frá kl. 20.00  Gengið frá Grófinni

Guðjón Ragnar Jónasson mun einnig leiða gesti um miðbæ Reykjavíkur og bregður hann upp svipmyndum úr menningarheimi sem mörgum er hulinn og rifjar upp áfanga úr baráttu fyrir réttindum og sýnileika hinsegin fólks. Gangan hefst fyrir utan Borgarbókasafnið í Grófinni.

DragStund Starínu | Lestur er bestur!                                                                                                                            

5. ágúst, kl. 14.00, Borgarbókasafnið Gerðubergi                                                                                                
6. ágúst, kl. 14:00 í Bókabílnum Höfðingja við Tjarnargötu

Dragdrottningin Starína les og skemmtir börnunum á Hinsegin dögum! Af hverju? Því lestur er bestur!

Starína hefur síðastliðin ár glatt börn með því að lesa fyrir þau sögur með hinsegin sögupersónum sem getur verið mjög góð leið til að kynna börnum fyrir öðrum veruleika og hvetja þau til að spyrja spurninga og þannig læra að fólk er allskonar. Eftir lesturinn er hægt að heilsa og láta taka myndir af sér með Starínu.