Hönnunarsamkeppni um Fossvogsbrú

Samgöngur Umhverfi

""

Ríkiskaup fyrir hönd Vegagerðarinnar býður til opinnar hönnunarsamkeppni, sem er framkvæmdasamkeppni, um útlit og hönnun brúar yfir Fossvog fyrir almenningssamgöngur, hjólandi og gangandi ásamt stígum, akreinum og umhverfi að brúnni innan samkeppnissvæðis.

Brú yfir Fossvog er ætluð fyrir gangandi, hjólandi og umferð almenningsvagna yfir Fossvog, frá flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar vestan Nauthólsvíkur yfir á norðausturhluta Kársnestáar. Samkeppnissvæðið tekur til þess svæðis á landi og sjó sem mun falla undir og við fyrirhugaða brúartengingu yfir Fossvog, milli Kópavogs og Reykjavíkur og nágrenni þess. Stærð samkeppnissvæðisins er um 4,9 ha.

Ríkiskaup heldur utan um hönnunarsamkeppnina í TendSign.

Lesa nánar um hönnunarsamkeppnina og útboðið.