45 hljómsveitir stigu á svið á fjórum undankvöldum Músíktilrauna 2021 nú um síðastliðna Hvítasunnuhelgi. Úrslitin voru þann 29. maí og vann hljómsveitin Ólafur Kram verðlaunin.
Músíktilraunir er tónlistarhátíð/keppni sem hefur, allt frá árinu 1982, verið einn aðalvettvangurinn fyrir ungar íslenskar hljómsveitir og tónlistarfólk á aldrinum13-25 ára til að koma tónlist sinni á framfæri. Hitt Húsið, miðstöð ungs fólks sér um framkvæmd hátíðarinnar.
Mikil fjölbreytni var í stefnum og stílum hljómsveitanna og aðsókn á undankvöldin og úrslit þann 29. maí voru með eindæmum góð.
Eftir æsispennandi úrslitakvöld þar sem að 12 hljómsveitir spiluðu var niðurstaða dómnefndar og símakosningar tilkynnt. Spenna lá í loftinu og eftirvæntingin var mikil jafnt hjá áhorfendum sem þátttakendum. Glæsileg verðlaun voru veitt, hljóðverstímar, spilamennska á hinum ýmsu tónlistarhátíðum hérlendis og úttektir í hljóðfæra- og tónlistarverslunum svo dæmi séu nefnd.
Eftirfarandi aðilar hlutu verðlaun á Músíktilraununum í ár og verður spennandi að fylgjast með þessu hæfileikaríka tónlistarfólki í nánustu framtíð.
1. sæti
Ólafur Kram
2. sæti
Eilíf sjálfsfróun
3. sæti
Grafnár
Hljómsveit fólksins
Piparkorn
Söngvari Músíktilrauna
Halldór Ívar Stefánsson - Eilíf sjálfsfróun
Gítarleikari Músíktilaruna
Ívar Andri Bjarnason - Sleem
Bassaleikari Músíktilrauna
Guðmundur Hermann Lárusson - Krownest
Hljómborðsleikari Músíktilrauna
Magnús Þór Sveinsson - Piparkorn
Trommuleikari Músíktilrauna
Alexandra Rós Norðkvist-
Salamandra, The Parasols og Æsa
Rafheili Músíktlrauna
Júlíus Óli Jacobsen - Dopamine Machine
Viðurkenning fyirir textagerð á íslensku
Ólafur Kram