Heilsudagar hjá eldri borgurum

Velferð Mannréttindi

""

Þessa dagana standa yfir heilsudagar í félagsstarfi eldri borgara í Laugardal og Háaleiti. Heilsudagar hefjast í framhaldi af Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum10. október og munu standa yfir í 4 vikur.

Á heilsudögum eru í boði margskonar fræðslufyrirlestrar og skemmtun. Erindi um næringu, hreyfingu, líðan og lífsstíl. M.a. koma sérfræðingar frá Embætti landlæknis og frá Endurhæfingarteymi og erindi frá starfsmönnum í Þjónustumiðstöðinni svo og íþróttafræðingi, næringarfræðingum og homopata. Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrrum formaður Landssambands eldri borgara mun vera með hvatningarerindi sem hún nefnir: „Þetta verður góður dagur“ og Svanur Heiðar Hauksson félagsráðgjafi  flytur erindið  „Gleðin er besta víman“ Guðmunda Steingrímsdóttir  sjúkraliði erindið „Er heima best“ o.fl. og fl.

Heilsudagskrá er kynnt nánar í félagsmiðstöðvunum og er fólki bent á að kynna sér þá  fjölbreyttu dagskrá sem í boði er.

Heilsudagskrá er á eftirtöldum stöðum og allir velkomnir:

Félagsmiðstöðin Dalbraut 27 

Félagsmiðstöðin Furugerði 1

Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56 – 68

Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31

Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1

Næsta föstudag 15. okt er eftirfarandi á dagskrá kl. 13.30

  • í Félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31: Sigrún Daníelsdóttir verkefnastjóri hjá embætti Landlæknis flytur fræðsluerindið „ Fimm leiðir að vellíðan“ og Helga Margrét Guðmundsdóttir tómstunda – og félagsmálafræðingur erindið: „Maður getur meira með öðrum“  og sýnir  stuttmyndina „Við erum til“ sem byggð er á viðtölum við nokkra einstaklinga um nírætt sem búa í eigin húsnæði og sjá um sig sjálfir.
  • Í Félagsmiðstöðinni Hvassaleiti 56 – 58:  Hólmfríður Þorgrímsdóttir verkefnastjóri hjá embætti landlækni flytur erindi um næringu.
  • Í Félagsmiðstöðinni Norðurbrún 1;  Guðmunda Steingrímsdóttir sjúkraliði flytur erindið  „Er heima best“

  • Í Félagsmiðstöðinni Furugerði; Svanur Heiðar Hauksson félagsráðgjafi flytur erindið „ Gleðin er besta víman“
  •  Guðmunda Steingrímsdóttir sjúkraliði flytur erindið  „Er heima best“
  • Í Félagsmiðstöðinni Dalbraut 27 kl.14:  Guðrún Ólafsdóttir hómópati flytur  erindið: „Lækningin býr í þér“

Þátttaka í félagsstarfinu er öllum opin óháð aldri eða búsetu. Í starfseminni er heilsuefling og aukin virkni þátttakenda höfð að leiðarljósi og eru fjölmörg verkefni og hópastarf með það eitt að markmiði. Reglulega er gefin út dagskrá sem birt er á starfsstöðvunum og viðburðir kynntir í Mbl daglega og á FB síðum félagsmiðstöðvanna.

Í félagsmiðstöðvunum liggja frammi ýmis upplýsingarit um þjónustu borgarinnar við aldraða. Sett hafa verið upp göngukort/hreyfikort en þar má sjá merktar gönguleiðir.

Öll velkomin.