Hækkun á styrk köfnunarefnisdíoxíðs og svifryks í borginni

Samgöngur Heilbrigðiseftirlit

""

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) og svifryks (PM10) hefur farið hækkandi í borginni í dag, 31. mars skv. mælingum í mælistöðvunum við Grensásveg og Bústaðaveg/Háaleitisbraut. Búist er við svipuðum veðurfarsaðstæðum næstu daga.

Klukkan 11 var styrkur svifryks á Grensásvegi 115 míkrógrömm á rúmmetra og köfnunarefnisdíoxíðs 78 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöðinni í Bústaðaveg/Háaleitisbraut var styrkur svifryks 86 míkrógrömm á rúmmetra og köfnunarefnisdíoxíðs 21 míkrógrömm á rúmmetra.

Mengun frá útblæstri bifreiða

Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. Uppspretta svifryks er uppspænt malbik, jarðvegsagnir, salt og sót úr útblæstri bifreiða. Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra og fyrir svifryk PM10 50 míkrógrömm á rúmmetra. 

Búist við skipuðum veðurfarsskilyrðum áfram

Nú er hæg­ur vind­ur og göt­ur þurr­ar og er búist við svipuðum veðurfarsaðstæðum næstu daga og því lík­ur á svifryks- og köfn­un­ar­efn­is­díoxíðmeng­un einkun við um­ferðargöt­ur. Góðar líkur eru þó á því að umferð verði róleg í borginni um páskahátíðina og fólk fari á milli staða með öðru móti. Þannig geta þau sem eru viðkvæm í öndunarfærum og börn notið útivistar betur. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru nú staðsettar við Bústaðaveg/Háaleitisbraut og Vesturbæjarlaug.