Gosmóða hefur áhrif á loftgæði yfir Reykjavík

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Gosmóða hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu sl. sólarhring og auk þess hafa mælst hækkuð gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2).

Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu.  Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum.

Gosmóðan inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á  brennisteinsdíoxíði (SO2) heldur sést sem hækkun í fínasta svifrykinu, PM2,5 og PM1.  Kl. 9:00 mældist PM2,5 32,3 míkrógrömm á rúmmeter og PM1 31,8 míkrógrömm á rúmmeter í mælistöð Heilbrigðiseftirlitsins við Bústaðarveg.  Klukkan 10:00 mældist PM 2,5 50 míkrógrömm á rúmmeter í mælistöð Umhverfisstofnunar við Grensásveg. 

Gosmóða næstu daga

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni gæti gosmóðan legið áfram yfir höfuðborginni á morgun en ætti að færast í burtu á miðvikudag.  Vindátt breytist seint á miðvikudag eða fimmtudag og mun þá SO2 mengun hætta að berast frá gosinu yfir borgina.

Gosmóðan eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins.  Þær agnir sem myndast eru m.a. brennisteinssýra og önnur brennisteinssambönd. Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða. 

Almenningur er hvattur til að fylgjast með tilkynningum Veðurstofunnar um gosmóðuna og einnig má skoða stöðu loftgæða á vef Umhverfisstofnunar  en þar má sjá kort yfir staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík og fylgjast með styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2), svifryks og annarra efna. 

Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:

  • Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun
  • Ráðstafanir til varnar SO2 og annari gosmengun mengun innandyra
    • Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
    • Hækkaðu hitastigið í húsinu.
    • Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.

Auk ofangreindra upplýsinga má finna ráðleggingar vegna heilsufarslegra áhrifa að völdum loftmengunar á síðu landlæknis en þar má einnig finna ný uppfærðar leiðbeiningabækling fyrir almenning (2. apríl 2021) Hætta á heilsutjóni vegna loftmengunar frá eldgosum og er hann aðgengilegur á íslensku, ensku og pólsku.