Gatnaframkvæmdir í Vogabyggð
Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út áframhaldandi framkvæmdir vegna uppbyggingarinnar í Vogabyggð.
Mikil uppbygging stendur nú yfir í Vogabyggð, gamla iðnaðarsvæðinu vestan við Elliðaárósa, en þar munu rísa um 1.200 - 1.500 íbúðir þegar svæðið verður fullbyggt.
Um er að ræða gatnaframkvæmdir við Stefnisvog og Dugguvog á skipulagssvæði Vogabyggðar 1 og framkvæmdir við Dugguvog á skipulagssvæði Vogabyggðar 2. Framkvæmdirnar felast í vinnu við götur, gangstéttir, lagnir, lýsingu og fleira og eru unnar í samstarfi með Veitum.
Kostnaðaráætlun er 380 milljónir króna en þar af er hluti Reykjavíkurborgar 250 milljónir króna.
Hugmyndasamkeppni um byggingu skóla
Nýlega var ákveðið að halda hugmyndasamkeppni um nýja skólabyggingu fyrir hverfið með aðstöðu fyrir starfsemi frístundaheimilis og félagsmiðstöð. Gert er ráð fyrir að nýtt skólahúsnæði verði byggt í þremur áföngum eftir því sem að íbúum í Vogabyggð fjölgar. Áætlað er að allt að 600 nemendur á leik- og grunnskólastigi muni eiga heimili í hverfinu.
Skólabyggingarnar munu verða á svokölluðum Fleyvangi þar sem smábátahöfnin er einnig staðsett og verður byggð göngu- og hjólabrú yfir Ketilbjarnarsíki sem aðskilur nesið frá byggðinni.