Framkvæmdir í nýbyggingarhverfum í sumar
Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út ýmsar framkvæmdir í nýbyggingahverfum á þessu ári.
Um er að ræða verkefni í Úlfarsárdal, Reynisvatnsási, Norðlingaholti og Sléttuvegi sem verða unnin í sumar og haust. Framkvæmdirnar felast í uppsteypu á gangstéttum, lagningu göngu- og hjólastíga, frágangi við torg og bílastæði, malbikun og jöfnun yfirborðs, gróðursetningu og ræktun. Kostnaður vegna þessara framkvæmda er áætlaður 560 milljónir króna.
ÚLFARSÁRDALUR
Í Úlfarsárdal verða steyptar gangstéttir og stígar og gróðursett í takt við uppbyggingu íbúðabyggðar í hverfinu en nú stendur yfir mikil uppbygging við Leirtjörn. Þá verður ráðist í umhverfisfrágang við Úlfarsbraut við lóð Dalskóla og menningarmiðstöðvar. Einnig verður farið í gerð útivistarstígs við Leirtjörn. Áætlað er að þessar framkvæmdir kosti 460 milljónir króna.
REYNISVATNSÁS OG GRAFARHOLT
Steyptar verða gangstéttir samhliða uppbyggingu íbúðabyggðar. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 20 milljónir króna.
NORÐLINGAHOLT
Gangstéttir við Elliðabraut verða lagðar auk þess sem gengið verður frá hljóðmön og gróðri þar við á milli Breiðholtsbrautar og íbúða við Elliðabraut. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 40 milljónir króna.
SLÉTTUVEGUR
Gerðar verða gönguleiðir og unnið við frágang umhverfis í hverfinu. Kostnaður er áætlaður 40 milljónir króna.