Eva Bergþóra Guðbergsdóttir ráðin teymisstjóri samskiptateymis

""

Eva Bergþóra Guðbergsdóttir hefur verið ráðin í starf teymisstjóra samskiptateymis Reykjavíkurborgar. 

Eva Bergþóra er með BA í ensku og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið MA gráðu í alþjóðasamningagerð og MPA gráðu í stjórnsýslufræðum frá Middlebury Institute of International Studies. Eva Bergþóra hefur víðtæka reynslu af samskipta- og upplýsingamálum og hefur starfað sem aðstoðarfréttastjóri á Stöð 2 og Bylgjunni, og áður sem fréttamaður bæði á Stöð 2 og RÚV.

Eva Bergþóra hefur síðastliðinn áratug starfað hjá samskiptasviði Middlebury háskólans í Kaliforníu, nú síðast sem deildarstjóri  þar sem hennar starf snýr að upplýsingamiðlun, gerð markaðsefnis fyrir vef og samskiptamiðla, stefnumótun ásamt  innri og ytri samskiptum.  Eva Bergþóra er jafnframt aðjúnkt við skólann.