Ekkert heitt vatn í Vesturbænum seint í nótt og á morgun

""

Veitur tilkynna að heitavatnslaust verður vestan við Læk og Vatnsmýri frá kl. 3:00 aðfararnótt þriðjudagsins 17. ágúst til um kl. 16:00 sama dag.

Starfsfólk Veitna hefst í nótt handa við að tengja nýja hitaveitulögn fyrir Landspítala-háskólasjúkrahús við stofnlögnina sem flytur heitt vatn í Vesturbæ Reykjavíkur. Skrúfa þarf fyrir stofnlögnina á meðan og verður því heitavatnslaust vestan við Læk og Vatnsmýri meðan nýja lögnin er tengd, frá kl. 3:00 aðfararnótt þriðjudagsins 17. ágúst til um kl. 16:00 sama dag.



Veitur benda fólki á að hafa skrúfað fyrir heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Þá er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að halda betur hita í húsum.



Upplýsingar um framgang verksins verða settar á Facebook-síðu Veitna, https://www.facebook.com/veitur og á íbúasíður hverfanna á Facebook. Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.