„Breiðholtskrakkar 1.-2. bekkur“ veitir börnum í fyrsta og öðrum bekk tækifæri til að stunda tvær gerðir íþrótta, tónlistar eða dans samtímis og greiða aðeins kr. 25.000 fyrir þátttöku sína á önn.
Forráðamenn greiða 25.000kr. (helming frístundastyrks) fyrir þátttöku á vorönn 2021. Reykjavíkurborg greiðir aukaframlag með hverjum þátttakanda (kr. 15.000) beint til íþrótta- og frístundaðila sem þjónusta þátttakandann. Skráning fer fram á www.breidholt.is eða á vefsíðum íþrótta- og frístundaaðila hér að neðan. Ef þátttakanda finnst að valinn kostur henti ekki er mögulegt að skipta yfir í annan á miðri önn án aukagjalds.
- Fyrir hverja? Börn sem eiga lögheimili í Breiðholti og stunda nám í 1.-2. bekk geta nýtt sér þetta tækifæri.
- Frístundarúta: Gjaldfrjáls frístundarúta ekur um Breiðholt á virkum dögum milli 13:55-15:45. Rútan auðveldar börnum að komast frá skóla/frístundaheimili og í íþróttir, tónlist eða dans. Áætlun rútunnar má finna hér.
- Nánariupplýsingar: Þráinn Hafsteinsson verkefnastjóri frístunda og félagsauðs, Þjónustumiðstöð Breiðholts. thrainn.hafsteinsson@reykjavik.is
Valkostir:
- Dans Brynju Péturs-hip hop - www.bynjapeturs.is
- Dansgarðurinn-ballet - www.dansgardurinn.is
- ÍR - fimleikar - www.ir.is
- ÍR - júdó - www.ir.is
- ÍR - ungar (fótbolti, handbolti, körfuboltiii, frjálsar, karate, kela, skiði, tækwondo) - www.ir.is
- Leiknir - fótbolti - www.leiknir.com
- Ægir - sund - www.aegir.is
- Tónskóli Eddu Borg - hóptímar í forskóla fyrir hljóðfæranám - www.teb.is
- Tónskóli Sigursveins -hóptímar í forskóla fyrir hljóðfæranám - www.tonskolisigursveins.is