Foreldrar eru hvattir til að vera á varðbergi vegna kynferðisbrota gegn börnum á netinu.
Í bréfi sem skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Heimili og skóli, Samfok og SAFT hefur sent foreldrum grunnskólabarna er vakin athygli á nýrri birtingarmynd kynferðisborta gegn börnum og unglingum sem vert er að vera vakandi fyrir.
Borið hefur á því undanfarið að börn á grunnskólaaldri fái skilaboð frá glæpamönnum sem bjóðast til að greiða þeim peninga fyrir kynferðislegar ljósmyndir. Samskiptin fara fram á samfélagsmiðlum eins og Snapchat, Instagram og Tik Tok og Telegram. Greiðslur fara fram í gegnum öpp eins og Aur og Kass og eru börnum boðnar á bilinu 5-10.000 kr. fyrir myndina. Upphæðin ræðst af því hvað sést á myndinni og hversu skýr hún er. Nokkur slík mál eru nú til skoðunar hjá lögreglu.
Bréfið til foreldra hefur verið þýtt á ýmis tungumál enda krefjast mál sem þessi að allir taki höndum saman til að afstýra slíkum glæpum gegn börnum.
Bréfið til foreldra á íslensku.
Bréfið til foreldra á ensku.
Bréfið til foreldra á pólsku.
Bréfið til foreldra á filipeysku