Borgarstjórn sendi frá sér samhljóða ályktun í kvöld vegna skotárása sem gerðar hafa verið á bifreið borgarstjóra og höfuðstöðvar stjórnmálaflokka.
Ályktunin er eftirfarandi.
„Borgarstjórn fordæmir árásir á höfuðstöðvar stjórnmálaflokka og bifreið borgarstjóra og lítur þær mjög alvarlegum augum. Því miður hafa margir kjörnir fulltrúar áður fengið hótanir vegna starfa sinna. Allt slíkt ofbeldi er aðför að okkar frjálsa, lýðræðislega samfélagi og með öllu óásættanlegt. Gæta verður hófs í umræðu um kjörna fulltrúa og virða friðhelgi einkalífs. Við viljum ekki samfélag þar sem fólk sem helgar sig samfélagsmálum þarf að óttast um öryggi sitt og sinna nánustu.“