Benchwarmers Citra Smash bjór bólgnar út og springur
Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit
ÁTVR hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Benchwarmers Citra Smash bjór en ástæðan er að bjórinn getur bólgnað út og sprungið en hætta er á að neytendur geti slasast ef bjórinn springur.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Vöruheiti: Benchwarmers Citra Smash
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 19.12.2021 og 22.12.2021
- Strikamerki: Dós: 735009942004 - Kassi: 7350099424960
- Nettómagn: 330 mL
- Framleiðandi: Benchwarmers Brewing Co.
- Framleiðsluland: Svíþjóð
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
- Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, Stuðlahálsi 2, 110 Reykjavík
Um dreifingu sjá eftirfarandi verslanir ÁTVR/Vínbúðarinnar: Kringlan, Heiðrún, Skútuvogur, Skeifan, Dalvegur, Smáralind, Garðabær, Hafnarfjörður, Reykjanesbær og Akureyri.
Viðskiptavinir sem hafa keypt ofangreinda vöru er beðnir um að farga vörunni eða skila í næstu Vínbúð. Ef umbúðir vörunnar eru bólgnar ber að viðhafa fyllstu varúð.
Nánari upplýsingar veita Skúli Þór Magnússon, sérfræðingur á vörusviði ÁTVR, sími 842 2747 og Sigrún Ósk Sigurðardóttir, sími 895 6484.