Ákvörðun Persónuverndar hefur áhrif á skólastarf

Stjórnsýsla Skóli og frístund

Reykjavíkurborg leggur nú mat á réttarstöðu sína í kjölfar ákvörðun Persónuverndar um innleiðingu á upplýsingakerfinu Seesaw í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Líklegt er að ákvörðun Persónuverndar hafi mikil áhrif á skólastarf víða um land.

Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar barst nú fyrir helgi ákvörðun Persónuverndar í frumkvæðisathugun stofnunarinnar á Seesaw, gagnvirkri kennslulausn sem innleidd var í grunnskólum borgarinnar. Um er að ræða kennslulausn sem býður nemendum upp á að vinna verkefni í skapandi umhverfi og fá leiðréttingar og endurgjöf kennara með stafrænum hætti. Hún hefur verið notuð víða um land sem og um heim allan, og hefur gefið góða raun, ekki síst á tímum samkomutakmarkana. Telur stofnunin að vinnsla upplýsinga um grunnskólanemendur hafi ekki farið fram í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga nr. 90/2018.

Víðtæk áhrif á innleiðingu stafrænna lausna í skólum

Í ákvörðun Persónuverndar kemur fram að ekki sé hægt að taka mið af faglegu mati helstu sérfræðinga borgarinnar hvað varðar mikilvægi notkunar lausnarinnar við mat á nauðsyn vinnslunnar í skólastarfi. Í ákvörðuninni er áréttað að hægt er að bjóða nemendum að skila verkefnum rafrænt án þess að þeim sé safnað í tiltekið upplýsingakerfi og að þrátt fyrir að notkun slíkra kerfa sé í einhverjum tilvikum hentug þá felist ekki í því að hún sé nauðsynleg að mati stofnunarinnar. Skóla- og frístundasvið mun því þurfa að fá úr því skorið með hvaða hætti hægt er að innleiða stafrænar lausnir með lögmætum hætti í kennslu sem koma til móts við kröfur um nútímalega kennsluhætti og þarfir nemenda.

Ákvörðunin er afar ítarleg og munu sérfræðingar borgarinnar leggjast yfir niðurstöður stofnunarinnar og meta hvaða þýðingu ákvörðunin hefur á innleiðingu á stafrænum lausnum í skólum borgarinnar. 

Óraunhæfar kröfur 

Reykjavíkurborg hefur brugðist strax við ákvörðun Persónuverndar og hefur hafist handa við undirbúning þess að taka kerfið úr allri notkun samhliða eyðingu persónuupplýsinga í samræmi við tilmæli stofnunarinnar. Reykjavíkurborg tekur niðurstöðu Persónuverndar alvarlega en telur þó jafnframt nauðsynlegt að koma því á framfæri að af niðurstöðunni leiðir að ljóst er að innleiðing upplýsingatæknilausna í umhverfi grunnskóla getur ekki farið fram í óbreyttu starfsumhverfi grunnskóla hér á landi sé tekið mið af mannafla og tækniþekkingu starfsfólks á þeim vettvangi. Þá þarf að fara vandlega yfir hvaða áhrif niðurstaðan hefur á starf í framhaldsskólum. Reykjavíkurborg mun því stofna til samráðs við samband sveitarfélaga og menntamálaráðneytið um viðbrögð.

„Niðurstaða Persónuverndar leiðir til þess að skólum um land allt er ókleift að innleiða tæknilausnir í kennslu í óbreyttu umhverfi,“ segir Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. „Þessi ákvörðun hefur áhrif á alla grunnskóla sem og sveitarfélög landsins. Það er mikilvægt að standa vörð um upplýsingaöryggi nemenda en kröfur Persónuverndar til starfsfólks grunnskólanna verða að vera raunhæfar og samræmi við persónuverndarreglugerðina og útgefnar leiðbeiningar stofnunarinnar. Þeim hefur Reykjavíkurborg fylgt eftir bestu getu og óskað eftir samvinnu við Persónuvernd í því skyni að standa sem best vörð um hagsmuni nemenda og starfsfólks“. 

Reykjavíkurborg leggur mikla áherslu á að tryggja upplýsingaöryggi

Reykjavíkurborg hefur í hvívetna lagt sig fram við að sinna skyldum sveitarfélagsins sem leiða af persónuverndarlögum, sem og afleiddum skyldum á sviði upplýsingaöryggis og áhættumats í samræmi við leiðbeiningar sem gefnar hafa verið út af Persónuvernd og evrópska persónuverndarráðinu (EDPB). Það er að mati skóla- og frístundasviðs athugunarefni hvort Persónuvernd hafi veitt nægilegar leiðbeiningar til ábyrgðaraðila um þau atriði sem ekki þóttu framkvæmd í samræmi við persónuverndarlög.

Skóla- og frístundasvið mun reiða sig á ráðgjöf Persónuverndar um hvernig sé best að haga næstu skrefum varðandi notkun og innleiðingu tæknilausna í skólastarfi sem í samræmi við getu og fagþekkingu skólastjórnenda, kennara og annarra sérfræðinga á grunnskólastigi. Reykjavíkurborg mun áfram og í hvívetna leggja áherslu á forsvaranlega vinnslu persónuupplýsinga barna og allra þjónustunotenda að virtu upplýsingaöryggi sem og í samræmi við persónuverndarlög,