Agnes Ólafsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri í leikskólanum Sunnuási í Laugardal.
Agnes lauk prófi í leikskólakennarafræðum frá Fósturskóla Íslands 1993 og B.Ed. í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands 2008. Þá hefur hún lokið diplomu í stjórnun og forystu í lærdómssamfélagi frá Háskólanum á Akureyri og sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar frá sama skóla.
Agnes hefur víðtæka reynslu af stjórnun leikskóla, auk þess sem hún hefur innleitt þróunarverkefni og nýjungar í leikskólastarfi. Hún hefur starfað í leikskóla í rúm 25 ár, sem leikskólakennari, deildarstjóri og verkefnastjóri en lengst af sem aðstoðarleikskólastjóri auk þess sem hún hefur starfað sem leikskólastjóri í afleysingum í lengri og skemmri tíma.
Agnes tekur við af Ólöfu Helgu Pálmadóttur sem hefur verið leikskólastjóri um áratugaskeið hjá Reykjavíkurborg.
Alls bárust fimm umsóknir um starf leikskólastjóra í Sunnuási en umsóknarfrestur rann út 6. desember.