Áfangastaðurinn höfuðborgarsvæðið

Ferðamál Mannlíf

Við Austurvöll

Stofnaður hefur verið samstarfsvettvangur sveitarfélaga og atvinnulífsins á höfuðborgarsvæðinu um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið. Stofnsamningurinn var undirritaður af Lilju D. Alfreðsdóttur ráðherra ferðamála og Páli Björgvini Guðmundssyni framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Samningurinn byggir á Framtíðarsýn og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 sem unnin var í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og hagaðila. Samningurinn miðar að því að settur verði á fót samstarfsvettvangur sveitarfélaga og atvinnulífs um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið. Þannig verði stutt við þróun áfangastaðarins í átt að sjálfbærri framtíðarsýn og aukinni samkeppnishæfni.

Áhersla verði á þróun og kynningar- og markaðsstarf ásamt samlegð og samtali hagaðila í ferðaþjónustu og tengdra aðila. Unnið verði að því að samstarfsvettvangurinn verði við árslok 2022 að áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins.

Undirbúningur að stofnun áfangastaðastofa í öllum landshlutum hefur verið í gangi um nokkurt skeið. Búið er að undirrita samninga um stofnun áfangastaðastofa í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu en þessi samningur er liður í því að áfangastaðastofur verði í öllum landshlutum. Það er liður í því að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi ferðaþjónustu á starfssvæði samtakanna.

Markmið að efla samstarf og nýsköpun

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hófu undirbúning og framkvæmd við mótun samstarfs um áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið með þátttöku stjórnvalda, sveitarfélaga, atvinnulífsins og annarra hagaðila á árinu 2021. Verkefnið var sett fram í sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins á árinu 2020 þar sem skoða átti þörf fyrir áfangastaðastofu fyrir höfuðborgarsvæðið með það að markmiði að efla samstarf og nýsköpun. Samhliða var að störfum ráðgjafahópur í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og fyrirtækja í ferðaþjónustu. Þá var nýlega gengið frá ráðningu verkefnastjóra sem halda mun utan um áframhald verkefnisins en undirbúningur fyrir næstu skref verkefnisins er nú í fullum gangi.

Að sögn Páls Björgvins er mikilvægt fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að móta stefnu til framtíðar um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið í samstarfi við atvinnulífið. Innlendir og erlendir ferðamenn munu sækja höfuðborgarsvæðið í auknum mæli heim til þess að njóta mannlífs, menningar og útiveru. Því er mikilvægt að svæðið bjóði með samræmdum hætti fram þá möguleika sem í boði eru, þó þannig að séreinkenni og áherslur hvers sveitarfélags séu dregin fram. Þannig mun höfuðborgarsvæðið eflast enn frekar og samkeppnishæfni þess aukast gagnvart öðrum svipuðum svæðum erlendis.