Umferðarhraðinn hefur verið færður tímabundið niður í 30 km hámarkshraða á Bústaðavegi frá gatnamótum Sogavegar/Stjörnugrófar að Reykjanesbraut. Þar er unnið að gerð nýrrar götu sem verður hluti af Bústaðavegi, gerð nýs hringtorgs og nýrra undirganga fyrir gangandi og hjólandi umferð.
Ökumenn sem beygja af Reykjanesbraut inn á Sprengisand hjá Grillhúsinu og Atlantsolíu við gatnamótin fara síðan út af svæðinu á nýrri tímabundinni útakstursleið inn Bústaðaveg og þaðan til suðurs eða vesturs.
Umferð verður færð um hjáleiðir
Veitur þurfa að flytja háspennustrengi sem liggja meðfram Bústaðveginum fjær götunni vegna breytinga á landhæð. Einnig eru Veitur að stækka stofnlagnir fyrir heitt og kalt vatn.
Umferð verður færð um hjáleiðir framhjá framkvæmdasvæðinu vegna lagna sem þvera Bústaðaveginn og uppbyggingu hringtorgs og undirganga. Það verður gert í tveimur áföngum.
- Stutt hjáleið verður gerð í fyrri áfanga þegar grafið verður fyrir kaldavatns- og hitaveitulögn er þvera Bústaðaveginn (sjá mynd 1).
- Viðameiri hjáleið verður gerð þegar framkvæmdir hefjast við undirgöngin sjálf og hringtorgið (mynd 2).
Hámarkshraði um vegkaflann á Bústaðavegi frá Sogavegi að Reykjanesbraut verður 30 km/klst á meðan framkvæmdum stendur. Ökumenn verða þá beðnir um að sýna varúð vegna aðkomu að bensínstöð Atlantsolíu og Grillhúsinu.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki á fyrrihluta árins 2022.
Verkið í heild felst í:
- Byggingu undirganga fyrir gangandi og hjólandi umferð undir Bústaðaveg og gerð hringtorgs á Bústaðaveg, ásamt allri jarðvinnu þessu tengt.
- Hækkun Bústaðavegar, malbikun og frágangur á um 200 m kafla.
- Gerð nýrrar götu frá Bústaðavegi til norðurs, vestan við Sprengisand og hesthús.
- Gerð göngu- og hjólreiðastígs frá Miklubraut, meðfram rampa að Reykjanesbraut, suður fyrir ofannefnd undirgöng. Gerð tengistíga. Malbika skal stíga og ganga frá umhverfi.
- Færslu rampa lítillega til austurs.
- Byggingu stoðveggja ásamt hljóðvörn. Gerð vegriða og handriða.
- Flutningi rafstrengja, lögn götuljósastrengja, uppsetningu ljósastaura á stoðveggjum og meðfram stígum, Bústaðavegi og nýrri götu.
- Lögn fráveitulagna, gerð „blágrænna ofanvatnslausna“, lögn neysluvatns- og hitaveitulagna, lögn raflagna og gatna- og stíglýsingar.
- Lögn ljósleiðara.
Reykjavíkurborg og Veitur biðja ökumenn að sýna þolinmæði á meðan verkinu stendur og bíða þess að það verði glæsilegt og greiðfært fyrir alla þegar því lýkur.
Tenglar
Litla hjáleið
Stóra hjáleið
Landmótun - teikning
Myndasyrpa á staðnum 25. júní 2021
Verkefnið í framkvæmdasjá