Viðbragðsáætlun borgarinnar fyrir neyðarstig virkjuð

Covid-19 Velferð

""

Í ljósi þess að fyrsta innanlandssmitið vegna Covid-19 veirunnar hefur verið staðfest hefur ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni fært stig almannavarna af hættustigi á neyðarstig.

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar kom saman klukkan 16.00 í dag,  þar sem viðbragðsáætlun borgarinnar fyrir neyðarstig var virkjuð. Í samræmi við viðbragðsáætlanir verða stjórnendur borgarinnar upplýstir um það og lagt fyrir að þeir upplýsi starfsfólk sitt. 

Þjónusta borgarinnar sem og stjórnskipulag mun að flestu leyti haldast óbreytt. Helsta breytingin snýr að velferðarsviði sem mun loka þeim starfsstöðum og starfseiningum sem viðkvæmir einstaklingar sækja. Staðan er metin daglega og hugsanlega verða nýjar ákvarðanir um breytta þjónustu teknar á næstu dögum.

Sóttvarnarlæknir hefur ekki gefið út samkomubann þrátt fyrir neyðarstig almannavarna og ekki er mælt með að fella niður íþróttaviðburði eða mannamót, að svo komnu máli. Líkt og áður er borgarbúum og starfsfólki borgarinnar ráðlagt að fylgjast með fyrirmælum sóttvarnarlæknis og almannavarna og upplýsingum á www.landlaeknir.is

Neyðarstjórn mun funda aftur næstkomandi mánudag nema tilefni sé til að funda fyrir þann tíma.