Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna frístundastarfs á vegum Reykjavíkurborgar.
Viltu vekja athygli á gróskumiklu frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar eða veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðum samstarfsverkefnum frístundastarfs við grunnskóla eða leikskóla? Taktu þátt í að veita starfsfólki í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur viðurkenningu og hvatningu.
Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, frístundamiðstöðvar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, skólahljómsveitir, grunnskólar, leikskólar, aðrar stofnanir og samtök.
Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjal og verðlaunagrip til eignar
Skilafrestur tilnefninga er til 8. júní 2020. Tilnefningar sendist á sfs@reykjavik.is
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið frístundastarf verða afhent á uppskeruhátíðinni Höfuð í bleyti sem haldin verður 22. september 2020.