Reykjavíkurborg og Orka Náttúrunnar í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs standa fyrir samkeppni um þrjú ljósverk fyrir Vetrarhátíð 2021 sem stendur yfir dagana 4.-7. febrúar nk.
Vetrarhátíð verður nú haldin í 19. sinn og frá upphafi hefur markmiðið með hátíðinni verið að skemmta fólki á höfuðborgarsvæðinu og gefa því tækifæri til að njóta menningar, lista, íþrótta og útiveru í eigin sveitarfélagi og/eða heimsækja nágranna sína.
Ljósverk Vetrarhátíðar hafa lýst upp vetrarmyrkrið og lífgað upp á borgina á meðan að hátíðin stendur yfir.
Ljósverkasamkeppnin er opin öllum hönnuðum, arkitektum, myndlistarfólki, tónlistarfólki, ljósafólki, tölvunarfræðingum eða öðrum þeim sem vinna með rafmagn, hönnun og list í einhverju formi. Hvatt er til samstarfs milli ólíkra greina.
Kostur er ef verkið felur í sér gagnvirkni sem kallar á þátttöku gesta Vetrarhátíðar.
Undanfarin ár hefur Hallgrímskirkja verið eitt helsta kennileiti hátíðarinnar og eru ein verðlaun eyrnamerkt vörpun á stafrænu verki á Hallgrímskirkju, en önnur verk má framkvæma hvar sem er í borgarlandinu.
Markmið samkeppninnar er að virkja íslenskt hugvit og skapa lifandi og spennandi umhverfi á Vetrarhátíð 2021.
Verðlaun
Fyrstu verðlaun 1.000.000 kr.
Önnur verðlaun 500.000 kr.
Þriðju verðlaun 300.000 kr.
Áherslur dómnefndar
Dómnefnd leggur eftirfarandi áherslur í mati sínu:
sterk heildarhugmynd
listrænt gildi tillögu
praktísk hagnýting tillögu
Dómnefnd skipa:
Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Svanborg Hilmarsdóttir, tæknistjóri götuljósa ON
Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður og verkefnastjóri hjá Skipulags- og framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar
Marcos Zotes, arkitekt Basalt arkitektar, AÍ
Búi Bjarmar Aðalsteinsson, hönnuður
Keppnisritari og trúnaðarmaður:
Gerður Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Frestur til að senda inn fyrirspurnir er 17. nóvember.
Skilafrestur rennur út á miðnætti þann 14. desember næstkomandi.