Plötubúðir í Reykjavík bjóða upp á tónleika í streymi

Menning og listir Mannlíf

""

Plötubúðir í Reykjavík og Tónlistarborgin Reykjavík bjóða upp á tónleika í streymi auk spjalls tónlistarsérfræðinga um íslenskar útgáfur ársins fjögur kvöld fram að jólum.

Streymt verður beint frá tónleikunum á FB-síðu Tónlistarborgarinnar sem og FB-síðu hverrar plötuverslunar fyrir sig. Verkefnið er framhald verkefnis sem hófst í sumar og átti að fara fram í þrjú skipti í plötuverslunum Reykjavíkur. Vegna COVID-19 var einungis hægt að halda viðburðinn í eitt skipti sem þó gafst einstaklega vel. Nú hefur viðburðurinn verið færður yfir á netið. Hugmyndin að baki verkefnisins er að styðja við bakið á plötuverslunum á einkar erfiðum tímum og fagna mikilvægu hlutverki þeirra í tónlistarborginni. Á þessum tímum og rétt fyrir jólin viljum aðstandendur verkefnisins einnig benda fólki á að með því að kaupa íslenska tónlist í jólapakkann er það að styðja við bæði plötuverslanirnar og okkar frábæra tónlistarfólk.

Verkefnið, sem er samstarf Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og plötuverslana í Reykjavík, er stutt af Jólaborginni, FHF, FÍH og STEF.

Dagskráin er sem hér segir:

Smekkleysa - 15. des kl 21:00

-Tendra

-Kristín Anna

-Lovísa Rut og Benni Reynis spjalla um íslenskar útgáfur ársins

12 Tónar - 17. des kl 21:00

-Gróa

-Skoffín

Elísabet Indra og Andrea Jóns spjalla um íslenskar útgáfur ársins

Reykjavík Record Shop - 21. des kl 21:00

-Hist og

-Markús

Óli Dóri og Heiða Eiríks spjalla um íslenskar útgáfur ársins

Lucky Records - 22. des kl 21:00

-Ingibjörg Turchi

-Dalalæða

Steinar Fjeldsted og Svavar Pétur Eysteinsson spjalla um íslenskar útgáfur ársins.

Tónlistarborgin á Facebook og Instagram