Stærsti stúdentagarður á Íslandi og jafnframt fjölmennasta íbúðarhús á landinu á einu húsnúmeri, hefur verið tekinn í notkun.
Stúdentagarðurinn sem Félagsstofnun stúdenta (FS) á og rekur er á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands. Hann hefur hlotið heitið Mýrargarður og var áfanganum fagnað í gær að viðstöddum nýjum íbúum og fjölda gesta. Húsið stendur við Sæmundargötu 21 og er um 14.000 fermetrar að stærð á fimm hæðum. Þar eru 244 leigueiningar fyrir barnlaus pör og einstaklinga. Rýmis fyrir tæplega 300 manns.
Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri FS og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, afhjúpuðu nafnskjöld fyrir samkomusal Mýrargarðs, en hann heitir Eiríksbúð og er verið að heiðra minningu Eiríks Hilmarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Vísindagarða Háskóla Íslands.
Nýtt íbúðarform – 8 – 9 íbúðir í kjarna
Boðið er upp á nýtt íbúðarform sem hefur að sögn FS gefist vel, þar sem einstaklingar eða vinahópar búa saman í 8 og 9 herbergja íbúðum. Herbergin eru með sér baðherbergjum en fullbúnum eldhúsum og setustofum er deilt. FS hefur með markvissri uppbyggingu stúdentagarða náð að vinna á löngum biðlistum eftir plássi og getur nú úthlutað fleirum húsnæði en áður. Frá árinu 2013 hefur FS fjölgað leigueiningum sem nemur um 645. Er þá fjöldi leigueininga í eigu FS um 1.450, sem hýsa stúdenta og fjölskyldur þeirra, þ.e. um 2.000 manns. FS hefur því með byggingu Mýrargarðs náð markmiði um byggingu tæplega helmings þeirra leigueininga sem stefnt er á að byggja á næstu árum.
Úthlutun hefur stytt bið eftir plássi
Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, var að vonum ánægð með áfangann. „Mýrargarður er afsakaplega fallegt og vel skipulagt hús. Það er okkar keppikefli að geta boðið stúdentum Háskóla Íslands upp á gott og öruggt húsaskjól á sanngjörnu verði og þessi bygging er sannarlega lóð á þær vogarskálar. Mikil uppbygging á húsnæði hefur komið hreyfingu á úthlutun á húsnæði sem hefur stytt bið eftir plássi. Til að mynda geta nýstúdentar nú sótt um húsnæði á stúdentagörðum á sama tíma og þeir sækja um nám í mars. Mig langar til að þakka Vísindagörðum, Háskóla Íslands og Reykjavíkuborg fyrir gott samstarf í gegnum tíðina sem og öllum þeim sem aðstoðuðu okkur við að hanna og fjármagna byggingu hússins. Að auki óska ég nýjum íbúum til hamingju með nýja heimilið sitt.“
Gleðileg fjölgun stúdentaíbúða
„Mér telst til að á fyrstu 100 árum frá stofnun háskólans eða til 2011 voru stúdentaíbúðir um 700. Á síðustu árum hefur okkur tekist að um það bil tvöfalda þann fjölda stúdentaíbúða og það er miklu meira framundan,“ segir Dagur B Eggertsson borgarstjóri. „Það sem FS hefur tekist er að skapa samfélag stúdenta þar sem allir eru með og Mýrargarður er frábært dæmi um það. Um leið er það það sem við höfum unnið að á undanförnum árum.“
Eiríksbúð er nafn við hæfi
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, óskaði FS, stúdentum og Háskóla Íslands innilega til hamingju með daginn. „Mýrargarður er glæsilegur og mikil lyftistöng fyrir okkur öll. Mér finnst einkar vel til fundið að Eiríksbúð sé nefnd eftir Eiríki Hilmarssyni heitnum. Eiríkur, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands var einstakur og alger lykilmaður í því að gera Vísindagarða að því sem þeir eru í dag. Hann var vakinn og sofinn yfir verkefninu og afar mikilvægur tengiliður á mili HÍ, FS og borgarinnar.”