Meirihluti fatlaðs fólks á íbúðakjörnum og sambýlum telur sig búa við sjálfstæði

Frummælendur á velferðarkaffi ásamt fulltrúum í velferðarráði.

Ein umfangsmesta könnun sem lögð hefur verið fyrir fatlað fólk hér á landi var kynnt á velferðarkaffi, opnum fundi velferðarráðs, í morgun. Öllum íbúum á íbúðakjörnum og sambýlum á vegum Reykjavíkurborgar var boðin þátttaka í könnuninni.

Spurningalistarnir sem notast var við voru aðlagaðir að tjáskiptum og þörfum þátttakenda. 150 manns svöruðu könnuninni, þar af 122 á íbúðakjörnum og 28 á sambýlum. Svarhlutfall var 58% á sambýlum og 55% á íbúðakjörnum.

Markmið könnunarinnar var að meta sjálfstætt líf íbúa og nýtingu þeirra á tækni í daglegu lífi. Könnunin var framkvæmd af teymi árangurs- og gæðamats á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Í öllu starfi með og fyrir fatlað fólk á velferðarsviði er unnið út frá hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Þá er mikil áhersla lögð á að gera þjónustukannanir á meðal notenda þjónustunnar. 

Heilt yfir má segja að niðurstöður könnunarinnar séu jákvæðar. Þannig segir mikill meirihluti íbúa sig búa við sjálfstæði, geta gert það sem þeir vilja, þegar þeir vilja, til dæmis að hitta vini og sinna áhugamálum sínum. Upp til hópa eru íbúarnir jafnframt tæknivæddir, en 84% íbúa á íbúðakjörnum hafa aðgang að interneti og 89% nota tækin sín til að vera í samskiptum við vini og ættingja

 

 

 

Velferðarkaffi

Á velferðarkaffi fór Aðalbjörg Traustadóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu fatlaðs fólks á velferðarsviði, yfir stöðu húsnæðismála og stefnu í málefnum fatlaðs fólks. Þá sagði Linda Björk Holm, forstöðumaður íbúðakjarnans í Einholti 6, frá daglegu lífi íbúa þar. Líkt og alltaf á velferðarkaffi stóð til að fá sjónarhorn notenda þjónustunnar en vegna veikinda gekk það því miður ekki upp í þetta sinn. Fundarstjóri var Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.