Kveikt á jólaljósunum á íslenska jólatrénu í Þórshöfn

Mannlíf

""

Kveikt var á jólaljósunum á íslenska jólatrénu á Tinghúsvöllinum í Þórshöfn þann 28. nóvember síðastliðinn.

Þetta er í áttunda sinn sem Reykjavíkurborg færir Þórshafnarbúum tré að gjöf sem þakklætisvott fyrir frændsemi þjóðanna tveggja.

Tréð er 12 metra hátt sitkagreni og var fellt á skógræktarsvæði Skógræktar Reykjavíkur á Elliðavatnsheiðinni í Heiðmörk um miðjan nóvember sl.

Eimskip sá um flutning trésins til Færeyja.

Vegna heimsfaraldurs var ekki efnt til viðburðar á Tinghúsvöllinum að þessu sinni en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sendi Þórhafnarbúum rafræna jólakveðju.