Íþróttafólk Reykjavíkur 2020

Mannlíf Íþróttir og útivist

""

Íþróttafólk Reykjavíkur 2020 var tilkynnt í dag með öðrum hætti en venjulega vegna aðstæðna í samfélaginu, meðfylgjandi eru myndbönd af tilnefningum og sigurvegurum.

Íþróttakona Reykjavíkur 2020 er Steinunn Björnsdóttir, handknattleikskona í Fram

Steinunn Björnsdóttir er fyrirliði bikarmeistara og deildarameistara Fram í handknattleik 2020. Steinunn hefur verið besti leikmaður Íslandsmótsins í handbolta, eftir síðasta tímabil var hún valin besti varnar og línumaðurinn sem og valin mikilvægasti leikmaðurinn. Steinunn er fyrirmyndarleikmaður og mikill leiðtogi inn á vellinum, Steinunn leggur áherslu á að miðla reynslu sinni til yngri iðkenda og heldur fyrirlestra í félögum á höfuðborgarsvæðinu.

Við óskum Steinunni Björnsdóttur til hamingju með titilinn Íþróttakona Reykjavíkur 2020.

Íþróttamaður Reykjavíkur 2020 er Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golfari í GR

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Á árinu 2020 var Guðmundur Ágúst með keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, Challenge Tour en aðeins fimm íslenskir kylfingar hafa öðlast keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Guðmundur Ágúst endaði í 46. Sæti á stigalistanum sem er næst besti árangur hjá íslenskum atvinnukylfingi á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour). Besti árangur hans var á Norður-Írlandi þar sem Guðmundur Ágúst endaði í 5. sæti. Guðmundur Ágúst hefur farið hratt upp heimslistann á undanförnum misserum.

Við óskum Guðmundir Ágústi Kristjánssyni til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2020.

Íþróttamenn sem voru tilnefndir sem Íþróttafólk Reykjavíkur 2020 og fá fjárstyrk frá ÍBR eru:

Konur Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, spjótkastari - Ármann Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, frjálsíþróttakona - ÍR Elín Metta Jensen, knattspyrnukona - Valur Kristrún Guðnadóttir, gönguskíðakona - Ullur

Karlar Birkir Már Sævarsson, knattspyrna - Valur Guðni Valur Guðnason, Krinlukast - ÍR

Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingar - Ármann Snorri Einarsson, skíðaganga - Ullur

Íþróttalið Reykjavíkur 2020 eru Íþróttafélögin í Reykjavík.

Árið 2020 hefur einkennst af því að félögin hafa þurft að hugsa út fyrir rammann til að halda íþróttafólkinu við efnið í miðjum heimsfaraldri. Þjálfarar og stjórnir íþróttafélaganna hafa unnið þrekvirki með því að aðlaga starfið og nýta tæknina eins og kostur var á.

Íþróttalið sem ná framúrskarandi árangri á árinu fá fjárstyrk frá ÍBR. Þau lið sem eru Íslandsmeistarar, Bikarmeistarar og Deildarmeistarar hljóta styrkinn.

Liðin sem hljóta styrk að þessu sinni eru:

Handknattleiksdeild Fram

Keiludeild ÍR

Keilufélag Reykjavíkur

Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur

Handknattleiksdeild Vals

Knattspyrnudeild Vals

Körfuknattleiksdeild Vals

Borðtennisdeild Víkings

Karatefélag Þórshamars