Sláturfélag Suðurlands (SS), að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum tvær gerðir af Wasa hrökkbrauði; Wasa Sesam & Havssalt og Wasa Sesam Gourmet
Ástæðan fyrir innkölluninni er að varnarefnið ethylene oxíð greindist í vörunni en það er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu. Neysla á matvælum sem innihalda ethylene oxíð til langs tíma getur verið heilsuspillandi.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Wasa
Vöruheiti: Sesam & Havssalt
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.8.2021
Lotunúmer: S01086800
Nettómagn: 290 g
Geymsluskilyrði: Á ekki við
Framleiðandi: Barilla/Wasa
Framleiðsluland: Svíþjóð
Vörumerki: Wasa
Vöruheiti: Sesam Gourmet
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.1.2021, 30.4.2021, 30.6.2021
Lotunúmer: G01044710, G01045630, G01046190
Nettómagn: 220 g
Geymsluskilyrði: Á ekki við
Framleiðandi: Barilla/Wasa
Framleiðsluland: Svíþjóð
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Sláturfélag Suðurlands (SS), Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Dreifing:
Wasa Sesam & Havssalt: Fjarðarkaup, Aðföng (Hagkaup), Verslun Einars Ólafssonar, Melabúðin, Hlíðarkaup, Ikea, jólagjafasala til fyrirtækja.
Wasa Sesam Gourmet: Hlíðarkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, gjöf til mæðrastyrksnefndar, jólagjafasala til fyrirtækja.
Leiðbeiningar til neytenda:
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreindar vörur eru beðnir um að neyta þeirra ekki og farga eða skila til Sláturfélags Suðurlands, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.