Innköllun á Til hamingju Granóla vegna varnarefnis

Heilbrigðiseftirlit

""

Innköllun á Til hamingju Granóla Morgungulli og Til hamingju Granóla vegna varnarefnis (ethylen oxíð) sem óheimilt er að nota við framleiðslu matvæla.

Nathan & Olsen hf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Til hamingju Granóla Morgungull í 450 g umbúðum og Til hamingju Granóla í 450 g og 1 kg umbúðum vegna þess að sesamfræ sem notuð voru við framleiðslu matvælanna innihalda varnarefnið ethylen oxíð sem óheimilt er að nota við framleiðslu matvæla.  Sesamfræin eiga uppruna sinn á Indlandi.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna matvælin sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki

Til hamingju

Til hamingju

Til hamingju

Vöruheiti

Granóla Morgungull

Granóla

Granóla

Nettómagn

450 g

450 g

1 kg

Best fyrir dagsetningar

30.05.2021

27.08.2021

01.09.2021

Framleiðandi

Nathan & Olsen hf., Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.

Dreifing

Bónus, Hagkaup, Krónan, Hlíðarkaup, Nettó, Melabúðin Krambúðin, Kjörbúðin, Iceland, Fjarðarkaup, Verslunin Kassinn, Kjöthöllin, Samkaup Strax, Kaskó, Smáalind/Fjölval, Pétursbúð, Rangá, Hjá Jóhönnu ehf, Verslunin Einar Ólafsson, Verslunin Borg.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreindar vörur eru beðnir um að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim til Nathan & Olsen hf., Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.