Innkallað Nudie Snacks

Heilbrigðiseftirlit

""

Heilsa ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, stöðvað sölu og innkallað frá neytendum sælgæti frá Nudie Snacks;  Protein Balls - Salted Caramel Brownie.

Ástæða innköllunar er að varan inniheldur mjólk sem ekki er getið um í listanum yfir innihaldsefnin.

Vegna þess að mjólk er ekki tilgreind í listanum yfir innihaldsefnin er neysla á vörunni ekki örugg fyrir þá einstaklinga sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk og mjólkurafurðum.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Nudie Snacks

Vöruheiti: Protein Balls - Salted Caramel Brownie          

Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 31/01/2021

Strikamerki: 5060280600708

Nettómagn: 42 g

Geymsluskilyrði: Á ekki við

Framleiðandi: Buchanan Dist. Ltd. / Nudie

Framleiðsluland: Bretland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru er Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.  heilsa[hja]heilsa.is

Dreifing:

Verslanir Lyfju um land allt.  Heilsuhúsið Kringlunni og Lágmúla.  Fjarðarkaup.

Leiðbeiningar til neytenda:

Viðskiptavinir sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk og mjólkurafurðum eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í verslunum Lyfju og Heilsuhúsanna.

Nánari upplýsingar um innköllun:

Nánari upplýsingar um innköllunina fást hjá vörusviði Heilsu og Lyfju á netfanginu dagny[hja]lyfja.is eða í síma 620 9464.