Íbúar kusu listaverk

Umhverfi Menning og listir

""

Reykjavíkurborg efnir til samkeppni um gerð útilistaverks í Vesturbæ Reykjavíkur í framhaldi af niðurstöðu kosninga á Hverfið mitt.  Útilistaverk í Vesturbæ er ein rúmlega 90 hugmynda borgarbúa sem koma til framkvæmda í ár.

„Við val á listaverki skal metið á hvern hátt verkið auðgar mannlíf í Vesturbæ, fegrar eða virkjar vannýtt svæði og skapar spennandi umhverfi. Kallað er eftir fjölbreyttum hugmyndum og er horft til þess að listaverk geta haft margbreytilega virkni og notagildi, ólíkir aldurshópar geti notið þeirra og eða þau tengist sögu svæðisins,“ segir á upplýsingasíðu samkeppninnar.

Frestur til að skila tillögum rennur út kl. 17 fimmtudaginn 21. maí nk. Áætlað er að uppsetningu listaverks ljúki á þessu ári.

Listaverkið á að vera hluti af almannarými í hverfinu og lögð áhersla á að því sé fundinn staður þar sem margir geta notið þess en einnig skal hafa í huga að nýta borgarlandið eða fasteignir borgarinnar.

Þeir sem áhuga hafa á að vinna verkið eru beðir senda inn nafnlausa tillögu þar sem fram kemur stutt lýsing á hugmyndinni að baki, efnisval og kostnaðaráætlun þar með talin höfundarlaun. Heildarkostnaður við verkið og uppsetningu þess verði að hámarki 10 milljónir króna.

Um samkeppnina gilda samkeppnisreglur Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Þátttaka í samkeppninni er opin öllum skapandi einstaklingum og hópum. Dómnefnd skipuð fulltrúum Reykjavíkurborgar og SÍM mun velja úr innsendum tillögum.

Tengt efni: