Hvaða framtíð blasir við tónlistargeiranum eftir COVID-19?

Menning og listir Mannlíf

""

Dagana 9. – 10. desember fara fram fyrirlestrar, umræður og vinnusmiðjur í nafni tónlistarhraðalsins Firestarter þar sem áherslan er á áhrif heimsfaraldur á þá starfssemi sem snýr að lifandi tónlistarflutningi og þá nýju framtíð sem blasir við tónleikastöðum, tónlistarhátíðum, tónleikahöldurum, tónlistarfólkinu sjálfu og tónleikaferðum þess í kjölfar COVID-19.

Markmiðið með viðburðinum er að styðja við nýjar hugmyndir og auka verðmætasköpun í íslensku tónlistarumhverfi á tímum þegar miklar breytingar eru að eiga sér stað og fjölmörg tækifæri blasa við. Að Firestarter standa Tónlistarborgin Reykjavík og ÚTÓN í samstarfi við Icelandic Startups.

Á meðal fyrirlesara á vinnusmiðjunni er Marc Geiger sem til ársins 2020 var einn af æðstu yfirmönnum William Morris Entertainment, einnar stærstu bókunarskrifstofu heims, auk þess að vera einn af stofnendum Lollapalooza tónlistarhátíðarinnar en hann fer nú fyrir verkefni sem kallast Save Live sem snýst um að koma tónleikastöðum til bjargar á tímum heimsfaraldurs. Opnunarerindið verður í höndum Oisin Lunny sem er margverðlaunaður markaðsmaður, þekktur fyrirlesari um málefni sem tengjast  listum og menningu og tækni og  greinahöfundur fyrir m.a Forbes og The Guardian. Beverley Whitrick frá Music Venue Trust í Brelandi mun veita þátttakendum innsýn í framtíð tónleikastaða en Music Venue Trust eru góðgerðarsamtök sem vinna að því að vernda, bæta og tryggja tilvist sjálfstæðra tónleikastaða. Að lokum mun Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live segja frá tilrauninni með Live from Reykjavík streymishátíðina og fjalla um hvernig tónlistarhátiðir og tónleikahald almennt muni breytast í kjölfar COVID auk þess sem tónlistarmaðurinn Svavar Knútur mun deila af sinni reynslu af streymi á tímum COVID-19 og fjalla um þau tækifæri sem blasa við tónlistarfólki þegar kemur að streymi.

Að fyrirlestrum loknum býðst þátttakendum að sækja vinnusmiðju sem miðar að því að rækta tónlistarfrumkvöðla, styrkja umgjörð viðskipta og efla tengsl tónlistar við umhverfi nýsköpunar og tækni. Umsjón með verkefninu er í höndum Icelandic Startups sem hefur í áraraðir veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi. Á vinnusmiðjunni verður farið yfir mótun nýrra viðskiptahugmynda, markaðssetningu á samfélagsmiðlum og gerð rekstraráætlana. Viðburðurinn fer fram með rafrænum hætti.

Hægt er að skrá sig til þátttöku á vefsíðu Firestarter (firestarter.is) fram til miðnættis þann 8. desember.

Nánari upplýsingar eru á www.firestarter.is og á viðburðinum á Facebook