Hólabrekkuskóli fékk minningarverðlaun Arthurs Morthens

Skóli og frístund

""

Minningarverðlaun Arthurs Morthens voru veitt í fjórða sinn á Öskudagsráðstefnu reykvískra grunnskólakennara í dag og komu í hlut Hólabrekkuskóla fyrir heildaráætlun um stuðning við nemendur með sérþarfir.

Minningarverðlaunin eru viðurkenning fyrir störf í þágu stefnu um skóla án aðgreiningar, en Arthur Morthens helgaði starfsævi sína börnum sem áttu að brattann að sækja í skólakerfinu.

Alls bárust 9 tilnefningar til verðlaunanna og fór dómnefnd yfir röksemdarfærslur með hverri og einni. Niðurstaða hennar var að veita Hólabrekkuskóla verðlaunin á grunni tilnefningar frá skólaráði skólans. Í henni segir m.a.:

Í Hólabrekkuskóla er áhersla lögð á kennsluaðferðir sem henta öllum nemendum hvort heldur sem er í almennri kennslu eða í stoðþjónustu. Nemendalýðræði, raddir nemenda og áhrif þeirra í skólastarfinu er í hávegum haft. Snillismiðja skólans kemur til móts við ólíkar þarfir þar sem stafræn tækni auðgar menntun nemenda og veitir þeim fjölbreytt tækifæri til sköpunar og tjáningar. Áhersla er á samvinnu fagaðila  og samskipti við foreldra þar sem Námshringurinn er notaður til að undirbúa nemenda- og foreldrasamtöl.  

Minningarverðlaun Arthurs Morthens voru málverk eftir listamanninn Tolla sem ber nafnið Sögur úr djúpinu ásamt verðlaunaskjali. Hólmfríður Guðjónsdóttir skólastjóri í Hólabrekkuskóla tók við verðlaununum ásamt samstarfsfólki sínu.

Dómnefnd var skipuð þeim Láru Guðrúnu Agnarsdóttur frá Kennarafélagi Reykjavíkur, Anni G. Haugen frá Barnaheillum, Sædísi Ósk Harðardóttur frá Félagi sérkennara á Íslandi og Sigríði Björk Einarsdóttur frá SAMFOK, ásamt tveimur fulltrúum frá skrifstofu skóla- og frístundasviðs.