Heilsuhegðun ungra íslendinga

Velferð Umhverfi

""

Kynntar verða niðurstöður viðamikillar langtímarannsóknar á stöðu heilbrigðisþátta ungra Íslendinga og tengsl þeirra við svefn, hreyfingu og skólaumhverfi í Háskóla Íslands, í Bratta í Stakkahlíð, fimmtudaginn 27. febrúar nk.

Rannsóknin er unnin af vísindamönnum við Háskóla Íslands í samstarfi við Reykjavíkurborg, Hjartavernd, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Lýðheilsustöð Bandaríkjanna.Markmið rannsóknarinnar er að skoða stöðu og langtímabreytingar á hreyfingu, svefni, þreki, og andlegri líðan íslenskra ungmenna. Kynntar verða helstu niðurstöður rannsóknarinnar fimmtudaginn 27. febrúar kl. 15.00-16.30 í Bratta í Háskóla Íslands í Stakkahlíð.



Dagskráin er sem hér segir:



Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og læknir flytur opnunarávarp.



Örfyrirlestrar

Vísindamenn og doktorsnemar kynna niðurstöður afmarkaðra þátta rannsóknarinnar.



Hannes Hrafnkelsson - Lágt D-vítamín hjá reykvískum börnum – Skiptir það máli?

Soffía Hrafnkelsdóttir - Skjánotkun, hreyfing og andleg líðan

Vaka Rögnvaldsdóttir - Svefn, hreyfing og holdarfar

Rúna Sif Stefánsdóttir - Áhrif skólaumhverfis á svefnmynstur

Elvar Smári Sævarsson - Íþróttaþátttaka, námsárangur og lífsstíll

Sunna Gestsdóttir - Andleg líðan og tengsl við heilsufarsþætti

Erlingur Jóhannsson - Lokaorð og samantekt



Fundarstjóri: Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings og fyrsti brautskráði doktorinn í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands.



Boðið verður upp á heilsusamlegt snarl að dagskrá lokinni.



Viðburðinum verður streymt.



Verið öll velkomin!



Vefur: https://heilsuhegdun.hi.is/