Hollt og gott hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Veislusalat 100 g vegna þess að í einum poka af salatinu fannst aðskotahlutur, hluti af fuglsvæng. Í varúðarskyni hefur fyrirtækið ákveðið að innkalla alla sendinguna, en salatinu eru pakkað á Ítalíu fyrir Hollt og gott.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna matvælin sem innköllunin einskorðast við:
|
Vörumerki |
Hollt og gott. |
|
Vöruheiti |
Veislusalat. |
|
Strikamerki |
5690350037822. |
|
Nettómagn |
100 g. |
|
Best fyrir dagsetning |
21.11.2020 |
|
Lotunúmer |
|
|
Innflytjandi |
Hollt og gott, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík. |
|
Dreifing |
Krónan, Hagkaup, Melabúðin, Fjarðarkaup, Rangá, Seljakjör og Kaupfélag Skagfirðinga. |
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga, skila henni í verslunina þar sem hún var keypt, eða til Hollt og gott, gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar veitir Hollt og gott í síma 575-6050 eða í gegnum netfangið hg@hollt.is