Framkvæmdir og frágangur í nýbyggingarhverfum

Umhverfi

""

Farið verður í framkvæmdir vegna frágangs í nýbyggingarhverfum fyrir 340 milljónir króna í ár.  Um er að ræða meðal annars gerð göngu- og hjólaleiða, gangstétta og frágang gatna. Áætlaður framkvæmdatími er frá maí fram í nóvember.

Um er að ræða eftirfarandi framkvæmdir:

  • Úlfarsárdalur  – 125 milljónir: Framkvæmdir eru meðal annars gangstéttar, stígagerð, áframhaldandi frágangur á bílastæðalóð við Dalskóla og ræktun í takt við þróun íbúðabyggðar.
  • Reynisvatnsás/Grafarholt – 20 milljónir króna: Framkvæmdir eru meðal annars gangstéttar og gerð hellulagðrar götu og torgs. 
  • Norðlingaholt – 20 milljónir króna: Framkvæmdir eru við gangstétt og þökulögn við Elliðabraut og gerð bílastæða við  Móavað.
  •  Sléttuvegur – 45 milljónir króna: Framkvæmdir eru við gönguleiðir í hverfinu.
  • Kirkjusandur – 50 milljónir króna:  Framkvæmdir eru meðal annars göngu-  og hjólaleiðir og jarðvinna í götum í takt við uppbyggingu hverfis.
  •  Gönguleiðir  og  ræktun – 30 milljónir króna: Um er að ræða frágang gönguleiða við Norðurfell, frágangur við Rauðarárstíg 1 og Bleikárgróf 6.
  • Hádegismóar – 10 milljónir króna:  Framkvæmdir eru gangstéttar og frágangur vegna uppbyggingar á atvinnulóðum. 
  •  Hallar – 10 milljónir króna: Framkvæmdir eru gangstéttar  og frágangur vegna uppbyggingar á atvinnulóðum. 
  • Almannadalur. Hesthúsahverfi og Fjárborg  – 30 milljónir króna: Frágangur innan hverfis, reiðstígar og frágangur gatna. 

Áður var búið að greina frá því að alls verði endurnýjaðir tveir kílómetrar af gangstéttum og öðrum gönguleiðum í eldri hverfum í ár fyrir samtals 200 milljónir króna. 

Í gær var enn fremur greint frá því að farið verði í samkeppni um nýjan miðborgarleikskóla og fjölskyldumiðstöð.